Fara í efni

Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir laust starf

12.02.2018

Sumarstörf 2018

  

Byggðasafn Skagfirðinga

Tímabil: Frá 1. mars til 20. október.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Safnvörður II.

Starfsstöðvar: Safnahús og sýningarrými í Glaumbæ, (gamli torfbærinn, Áshús, Gilsstofa og aðstöðuhús við bílastæði) og safnhús á Sauðárkróki.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður stýrir aðgangi gesta og gestamóttöku, leiðbeinir öðrum safnvörðum, leiðsegir gestum, annast muna- og húsavörslu og hefur yfirumsjón með þrifum.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um nám sem nýtist í starfinu.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi. Lögð er áhersla á lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 24 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2018

Nánari upplýsingar: Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri, bsk@skagafjordur.is, 453-6173.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.