Fara í efni

Auglýsing vegna framkvæmda við Sæberg - verndarsvæði í byggð á Hofsósi

30.09.2020
Sæberg á Hofsósi

Hjá byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar liggur fyrir byggingarleyfisumsókn frá eiganda Sæbergs á Hofsósi, um leyfi til að gera minni háttar breytingar á húsnæðinu.
Breytingarnar varða stækkun á viðbyggingu hússins og er  áætlaður verktími um 6 mánuðir.
Framkvæmdin er innan verndarsvæðis í byggð sem er Plássið og Sandurinn á Hofsósi sem staðfest var af ráðherra 12. febrúar 2020.

Gögn um fyrirhugaða framkvæmd liggja frammi til kynningar frá og með miðvikudeginum 30. september til og með 14. október 2020 í ráðhúsi sveitarfélagsins og hér á  heimasíðunni.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að kynna sér fyrirhugaða framkvæmd og gera athugasemdir eða ábendingar við hana. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi 14. október 2020 til byggingarfulltrúa í ráðhúsið Skagfirðingabraut 21 eða á netfangið: andrig@skagafjordur.is