Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál - mat á umhverfisáhrifum Öggur ehf

05.02.2018
Mynd úr Hjaltadal

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur tekið ákvörðun um að bleikjueldisstöð Öggurs ehf að Kjarvalsstöðum í Hjaltadal sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif sbr. viðmið í 2. viðauka við lög nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hér á heimasíðunni og einnig á vef Skipulagsstofnunar skipulag.is og samkvæmt 14. gr laga nr. 106/2000 má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 9. mars næstkomandi.