Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál - Lambeyri í Tungusveit

26.04.2023
Tillaga að deiliskipulagi

Tillaga að deiliskipulagi – Lambeyri í Tungusveit

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 12. fundi sínum þann 19. apríl 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Lambeyri í Tungusveit skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir hönd landeigenda Lambeyrar. Skipulagssvæðið er 1,74 ha að stærð og afmarkast að mestu leyti af lóðamörkum Lambeyrar. Svæðið er innan þéttbýlismarka Steinsstaða í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035 og er á landnotkunarreit L801 fyrir landbúnaðarsvæði. Á svæðinu er tjaldsvæði og aðstöðuhús. Viðfangsefni deiliskipulagsins verða meðal annars skilgreining á lóðarmörkum á tveimur lóðum, byggingarreitum og byggingarskilmálum. Skipulagsgögn eru skipulagsuppdráttur með greinargerð.

 

Skipulagstillagan er auglýst frá 26. apríl til og með 7. júní 2023. Tillagan mun liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15 og á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Athugasemdir og ábendingar varðandi skipulagstillöguna skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eða afgreiðslu ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 7. júní 2023.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar

 

Tillaga að deiliskipulagi