Fara í efni

Auglýsing um skipulag – Sveitarfélagið Skagafjörður

29.09.2021

Tillaga að deiliskipulagi – Birkimelur í Varmahlíð – deiliskipulag íbúðabyggðar 

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 22. september sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð í Birkimel í Varmahlið í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Markmiðið með tillögunni er m.a. að svara aukinni eftirspurn eftir íbúðarlóðum. Gert er ráð fyrir blandaðri byggð einbýlishúsa, parhúsa og raðhúsa. Nýtingarhlutfall lóða er á bilinu 0,30 til 0,40. 

Skipulagstillagan mun liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15.

Tillagan er auglýst frá 29. september til og með 11. nóvember 2021. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir og eða koma á framfæri ábendingum við skipulagstillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og má afhenda í afgreiðslu ráðhúss við Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki eða senda á póstfangið, Sveitarfélagið Skagafjörður, Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkróki. Einnig er hægt að senda ábendingar / athugasemdir á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is

Birkimelur - Uppdráttur

Birkimelur - Greinargerð

 

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar