Fara í efni

Auglýsing um deiliskipulag - Merkigarður í Tungusveit

03.07.2017
Merkigarður í Tungusveit

Skipulags- og byggingarfulltrúi auglýsir til kynningar skipulagslýsingu vegna gerðar deiliskipulags jarðarinnar Merkigarðs í Tungusveit.  Skipulagslýsingin liggur frammi í ráðhúsi sveitarfélagsins við Skagfirðingabraut og hér á heimasíðunni.

Deiliskipulaginu er ætlað að skapa ramma um væntanlega breytingu á landnotkun á svæðinu m.a. möguleikum fyrir gistiaðstöðu og gera grein fyrir lóðum og byggingareitum og skilgreina svæði fyrir hjólhýsi.

Ef einhverjar ábendingar eru skulu þær berast skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa á netfangið jobygg@skagafjordur.is fyrir miðvikudaginn 2. ágúst 2017.