Sveitarfélagið Skagafjörður óskar íbúum og landsmönnum öllum gleðilegra páska með von um að allir hafi það sem best yfir hátíðina og eigi ánægjulegar samverustundir.
Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Félagsheimilisins Höfðaborgar mun fjöldi skagfirskra listamanna flytja frumsamið leikverk í bland við létta dægurtónlist sem Sönglagasveitin flytur ásamt söngvurum.
Missið ekki af frábærri skemmtun. Skírdagur 2. apríl kl. 21:00. Miðapantanir í síma 893-0220. Miðaverð kr. 3.000.- Ath aðeins þessi eina sýning.
Það verður mikið um að vera í Skagafirði um páskana. M.a. verður opið á skíðasvæðinu í Tindastóli, skíðagöngumót í Fljótum, Sveitapiltsins draumur - frumsamið leikverk og létt dægurtónlist í Félagsheimilinu Höfðaborg, leikir í úrslitakeppninni í Dominos-deild karla í körfuknattleik, kvennatölt Norðurlands í reiðhöllinni Svaðastöðum, ýmsir tónlistarviðburðir á skemmtistöðum Sauðárkróks og þá verða sundlaugarnar opnar.