Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar að einstaklingi til að taka að sér starf sundlaugarvarðar við sundlaugina á Sólgörðum sumarið 2015.
Fram kemur á heimasíðu Skagafjarðarveitna að vegna viðgerðar á stofnæð þurfi að loka fyrir heita vatnið í neðri bænum sunnudaginn 19. apríl frá kl 8:00 Ekki verður heitavatnslaust í Hlíða- og Túnahverfi.
SMT hátíð var haldin nýlega í leikskólanum Birkilundi því skólinn er orðinn SMT sjálfstæður. Verið er að innleiða SMT skólafærni í leikskólum Skagafjarðar en hún felst í því að nota hrós og félagslega hvatningu til að styrkja jákvæða hegðun barnanna.
Það voru margir mættir í menntabúðir sem haldnar voru í Árskóla á Sauðárkróki síðastliðinn þriðjudag. Hægt var að velja á milli átta málstofa þar sem þátttakendum gafst kostur á að prófa, ræða og upplifa ýmsa tækni í kennslu.
Kvennakórinn Sóldís syngur fyrir dvalargesti á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki laugardaginn 18. apríl kl. 16:30 á sjúkrahúsinu, deild 2 og kl. 17:00 á dvalarheimilinu.
Ttónleikar verða um kvöldið í Höfðaborg á Hofsósi og hefjast kl. 20:30
Sæluvika Skagfirðinga 2015 verður sett í Húsi frítímans, sunnudaginn 26. apríl nk. kl. 14. Í kjölfarið tekur við vikulöng dagskrá þar sem tugir menningartengdra viðburða verða haldnir vítt og breytt um héraðið.
Leikskólinn Ársalir óskar eftir að ráða 5 starfsmenn til sumarafleysinga frá 1. júní - 14. ágúst 2014. Vakin er athygli á því að leikskólinn verður lokaður frá 20. júlí - 3. ágúst.