Fara í efni

Fréttir

Varmahlíðarskóli sigraði í sínum riðli í skólahreysti

05.04.2018
Fréttir
Í gær þann 4. apríl fór fram keppni í skólahreysti í íþróttahöllinni á Akureyri í Norðurlandsriðli. Það var Varmahlíðarskóli sem fór með sigur af hólmi og Grunnskólinn austan Vatna hreppti annað sætið en þessi sömu lið skipuðu einnig fyrstu tvö sætin í fyrra í sömu röð. Lokakeppnin í skólahreysti fer fram í Reykjavík þann 2. maí næstkomandi þar sem sigurvegarar allra riðlanna keppa um fyrstu sætin.

Lokað milli kl 9 og 17 í sundlaug Sauðárkróks 4.-6. apríl

04.04.2018
Fréttir
Lokað verður í sundlaug Sauðárkróks milli kl 9 og 17 dagana 4.-6. apríl vegna framkvæmda. Sundlaugin opnar á venjulegum tíma kl 6:50 og verður opin að venju til kl 20:30 þegar hún opnar aftur síðdegis.

Sumar 2018 - Fellstún 19b

04.04.2018
Fréttir
Heimilið Fellstúni 19b, Sauðárkróki óskar eftir kvenkyns starfsmönnum í sumarafleysingar tímabilið 25. maí til 25. ágúst 2018.

Fjölskyldusvið auglýsir starf í heimaþjónustu laust til umsóknar

03.04.2018
Fréttir
Starfið er laust frá 1. maí 2018, eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2018.

Sumar 2018 - Íþróttahús

03.04.2018
Fréttir
Laust er sumarstarf í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.

Sumar 2018 - Fellstún

03.04.2018
Fréttir
Heimilið Fellstúni, Sauðárkróki óskar eftir sumarstarfsfólki. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2018.

Gleðilega páska!

01.04.2018
Fréttir
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar íbúum og landsmönnum öllum gleðilegra páska með von um að allir hafi það sem best yfir hátíðina og eigi ánægjulegar samverustundir.

Opnunartími sundlauga um páskana

26.03.2018
Fréttir
Nú styttist í páskana og páskafríið og margir sem nota það til að heimsækja sundlaugarnar. Sundlaug Sauðárkróks verður opin alla dagana kl 10-17:30, sundlaugin á Hofsósi kl 12-17:30 og sundlaugin í Varmahlíð kl 10-15 en hún verður lokuð á föstudaginn langa og páskadag.

Tímabundnar lokanir í Sundlaug Sauðárkróks 26.-28. mars

23.03.2018
Fréttir
Nú standa yfir framkvæmdir við sundlaugina á Sauðárkóki og óhjákvæmilegt annað en að loka dagsparta í vikunni fyrir páska. Frá mánudegi til miðvikudags í næstu viku dagana 26.-28. mars verður lokað frá kl 9 á morgnana til kl 17 síðdegis.