Fara í efni

Skipulagsnefnd

111. fundur 26. nóvember 2026 kl. 13:00 - 13:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingvar Daði Jóhannsson formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Jódís Helga Káradóttir aðalm.
  • Einar Eðvald Einarsson
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Sólheimar (146338) - Umsókn um stofnun byggingarreits.

Málsnúmer 2611199Vakta málsnúmer

María Stefanía Jóhannsdóttir, Einar Halldórsson, Halldór Jóhann Einarsson, Kolbrún Erla Grétarsdóttir og Sigurður Ingi Einarsson f.h. Kúskerpi ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Sólheima landnr. 146338, óska eftir heimild til að stofna 1961,8 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75816001 útg. 20. nóv. 2026. Afstöðuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf., af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða byggingarreit fyrir viðbyggingu núverandi gripahúss sem byggt var árið 1990. Endanleg hönnun stækkunar mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarksbyggingarmagn viðbyggingar verður allt að 1500 m² og hámarksbyggingarhæð verður um 7 m.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar þar sem um er að ræða byggingu í tengslum við aðra byggingu.
Jafnframt segir í sama kafla:
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Fyrirhuguð framkvæmd er viðbygging við fjós sem jafnframt er innan umbeðins byggingarreits. Fram kemur í erindinu að lögð verði áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins og að áhrif á umhverfi verði óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar."

Fyrirliggur umsögn minjavarðar dagsett 23.11.2026 án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

2.Þorleifsstaðir L146359 í Blönduhlíð, Skagafirði - Umsókn um stofnun lóðar

Málsnúmer 2611200Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Þorleifs B. Hólmsteinssonar og Jónínu Láru Stefánsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram.
"Undirrituð, Þorleifur B. Hólmsteinsson og Jónína Lára Stefánsdóttir, þinglýstir eigendur jarðarinnar Þorleifsstaða, landnr. 146359, óska hér með eftir heimild til að stofna 920 m² lóð, sem "Þorleifsstaði hús", á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72940202, útg. 20. nóv. 2026, og merkjalýsingu dags. 20. Nóv.2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing af Birni Magnúsi Árnasyni.
Landheiti hinnar útskiptu lóðar vísar til upprunalands og notkunar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Þorleifsstöðum, landnr. 146359.
Óskað er þess að útskipt spilda verði skráð sem íbúðarhúsalóð.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er lóðin á landbúnaðarsvæði nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulags um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli, styðja við búsetu í dreifbýli og skerða ekki ræktarland í flokki I og II. Engin verndarsvæði ná inn á útskipta lóð.
Hér er ekki um að ræða ný framkvæmdaáform, heldur er einungis verið að afmarka og stofna lóð utan um þegar byggt mannvirki á jörðinni sem reist var árið 1949. Landskiptin fela því hvorki í sér nýtt rask né ný umhverfisáhrif. Í kafla 3.7 í aðalskipulaginu um landbúnaðarland segir meðal annars um skiptingu lands:
"Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi: Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands."
Með vísan til þessa er gætt vel að því að hin nýja lóð sé hófleg, ekki stærri en þörf krefur og nákvæmlega sniðin að þörfum og nauðsynlegu athafnarými um íbúðarhús. Þar sem mannvirkið er nú þegar til staðar hefur stofnun lóðarinnar engin frekari áhrif á búrekstrarskilyrði upprunajarðarinnar. Um 5,2 m eru á milli horna einbýlishúss (mhl. 03) og véla- og verkfærageymslu (mhl. 06), og liggja fyrirhuguð lóðamörk á milli þeirra. Húsin hafa staðið í þessari afstöðu hvort til annars frá árinu 1968. Stofnun lóðarinnar breytir engu um staðsetningu þeirra, notkun eða brunaálag. Báðar byggingar eru steinsteyptar með um 20 cm þykka útveggi sem hafa mikla brunamótstöðu. Sett verður eldvarnargler í glugga vélageymslu næst íbúðarhúsinu til að tryggja brunavarnir á milli bygginga.
Innan lóðar er mhl.03 Einbýlishús, 126,4 m2, byggt 1949.
Lögbýlisrétturinn mun áfram fylgja Þorleifsstöðum, landnr. 146359.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004572."

Nefndin áréttar þar sem í erindinu er vísað til öryggisþátta varðandi brunavarnir að slíkar framkvæmdir heyri undir eftirlit byggingarfulltrúa og kunni að vera tilkynningar- og/eða leyfisskyldar af hálfu byggingarfulltrúa.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna lóðarstofnun.

3.Ósk um breytingu á aðalskipulagi - Efnistökusvæði við Siglufjarðarveg, Stafá-Siglufjörður

Málsnúmer 2611201Vakta málsnúmer

Fyrirliggur erindi dags. 23.11.2026 undirritað af Magnúsi Björnssyni verkefnastjóra Tæknideildar Norðursvæðis hjá Vegagerðinni, þar sem eftirfarandi kemur fram:
"Vegagerðin er að undirbúa framkvæmdir við Siglufjarðarveg frá Stafá til Siglufjarðar og ný Fljótagöng. Vegagerðin óskar eftir breytingum á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Tilgangurinn er að tryggja efni í fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir endurbyggingu Siglufjarðarvegar frá Stafá til Siglufjarðar um Fljótagöng. Um er að ræða stækkun á námunum Hraun í Fljótum (D-44) og Reykjarhóli laxeldisstöð (E-15). Einnig er óskað eftir þremur nýjum námum; Gimbraklettum, Móskóganámu og Skálá við Sléttuhlíðarveg. Vinna við mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar stendur yfir og er fjallað nánar um efnistöku þar.
Meðfylgjandi tafla sýnir breytingarnar sem óskað er eftir og stutt lýsing á námunum."

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimilað verði að láta vinna breytingu á gildandi Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 varðandi umbeðnar námur vegna fyrirhugaðra framkvæmda við endurbyggingu Siglufjarðarvegar frá Stafá til Siglufjarðar um Fljótagöng í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin áréttar jafnframt að Vegagerðin kosti gerð umbeðinnar aðalskipulagsbreytingar skv. gjaldskrá sveitarfélagsins.

4.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 96

Málsnúmer 2610024FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 96 þann 27.10.2026.

5.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 97

Málsnúmer 2611006FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 97 þann 10.11.2026.

Fundi slitið - kl. 13:45.