Fara í efni

Sólheimar (146338) - Umsókn um stofnun byggingarreits.

Málsnúmer 2611199

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 111. fundur - 26.11.2026

María Stefanía Jóhannsdóttir, Einar Halldórsson, Halldór Jóhann Einarsson, Kolbrún Erla Grétarsdóttir og Sigurður Ingi Einarsson f.h. Kúskerpi ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Sólheima landnr. 146338, óska eftir heimild til að stofna 1961,8 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75816001 útg. 20. nóv. 2026. Afstöðuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf., af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða byggingarreit fyrir viðbyggingu núverandi gripahúss sem byggt var árið 1990. Endanleg hönnun stækkunar mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarksbyggingarmagn viðbyggingar verður allt að 1500 m² og hámarksbyggingarhæð verður um 7 m.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar þar sem um er að ræða byggingu í tengslum við aðra byggingu.
Jafnframt segir í sama kafla:
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Fyrirhuguð framkvæmd er viðbygging við fjós sem jafnframt er innan umbeðins byggingarreits. Fram kemur í erindinu að lögð verði áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins og að áhrif á umhverfi verði óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar."

Fyrirliggur umsögn minjavarðar dagsett 23.11.2026 án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.