Byggðarráð Skagafjarðar - 182
Málsnúmer 2602017F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026
Fundargerð 182. fundar byggðarráðs frá 19. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Til fundarins kom Selma Barðdal, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, og upplýsti um stöðu mála varðandi framgang fyrirhugaðrar stækkunar verknámshúss skólans eins og hún hefur verið kynnt fyrir skólayfirvöldum.
Byggðarráð þakkar Selmu kærlega fyrir komuna og veittar upplýsingar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða áskorun til mennta- og barnamálaráðherra:
Byggðarráð Skagafjarðar skorar á mennta- og barnamálaráðherra að fylgja, af sinni alkunnu einurð, eftir áformum forvera síns í embætti ráðherra, eins og þau birtust í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu 10. júní sl. Þar kom fram að ríkisstjórnin hyggist hefja framkvæmdir við fjóra verknámsskóla, þ.e. Menntaskólann á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólann á Akureyri. Samkvæmt tilkynningunni stranda áformin ekki á fjármagni og stefnt væri að því að framkvæmdir myndu hefjast nú í vetur, að loknu útboði.
Í stefnuræðu forsætisráðherra, 10. september sl., kom fram í ræðu ráðherra að á árinu 2026 yrðu hafnar framkvæmdir við stækkun fjögurra verknámsskóla vítt um land, sem væru fjármagnaðar.
Því miður virðast óútskýrðar tafir við útboðsgögn hjá Framkvæmdasýslunni - Ríkiseignum og skortur á staðfestingu á fjármögnun framkvæmda frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, valda því að útlit er fyrir að framkvæmdir við stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hefjist ekki á árinu 2026. Yrði það þá þriðja árið í röð þar sem mótframlag sveitarfélagsins Skagafjarðar í fjárhagsáætlun þess vegna byggingarinnar yrði ekki nýtt. Það er algjörlega óviðunandi staða á meðan ástand kennsluaðstöðu við skólann er með þeim hætti að stór hluti hennar fer fram í gámum og bráðabirgðaúrræðum á göngum bóknámshúss skólans. Ríkisstjórn Íslands verður að bretta upp ermarnar og láta efndir fylgja orðum. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Mál síðast á dagskrá 181. fundar byggðarráðs Skagafjarðar þann 11. febrúar 2026.
Upplýst var um tillögu að lausn málsins eftir að erindi barst frá tryggingafélagi Landmarks fasteignamiðlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði Björns Elvars Magnússonar og Lísu Guðbjörnsdóttur, dags. 12. janúar 2026, á fasteigninni Víðimýri 10, fastanúmer 213-2495. Heildarfjárhæð til sveitarfélagsins fyrir fasteignina eru 47,9 m.kr. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Borist hafa þrjú tilboð í íbúðina að Skógargötu 2, fastanúmer 213-2173.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka tilboði dagsett 18. febrúar 2026 að fjárhæð 38.750.000 kr. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Lögð fram beiðni um gerð viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Breytingar í framlagðri beiðni gera ráð fyrir aukningu útgjalda um kr. 5.850.471. Helstu breytur eru tímabundin aukning um hálft stöðugildi á málaflokki 04, og kaup á búnaði í Bifröst vegna kvikmynda- og leiksýninga. Niðurstaðan er lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð, kr. 5.850.471.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Skagafirði barst bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 12. febrúar 2026, þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins. Frestur til að skila inn tilnefningu eða framboði er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 27. febrúar 2026. Um framboð og kjör til stjórnar gilda hlutafélagalög nr. 2/1995 og lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Jafnframt er farið að leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja að eins miklu leyti og unnt er. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 182 Á fundinum var lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 27. janúar 2026. Í tölvupóstinum fer Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins, yfir erindi sitt á málþingi Sambandsins um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar byggðarráðs var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.