Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43
Málsnúmer 2602014F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026
Fundargerð 43. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 19. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Hrefna Jóhannesdóttir kvöddu sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina. Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43 Umræður um Sæluviku 2026.
Starfsmaður nefndarinnar fór yfir nýtt kynningarefni ásamt fyrirkomulagi hátíðarinnar í ár.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar árið 2026.
Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar jafnframt að auglýsa eftir styrktarumsóknum vegna viðburðarhalds á hátíðinni. Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43 Á 42. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 16. janúar 2026 var tekið fyrir erindi dags. 17. nóvember 2025 frá Ástu Búadóttur, formanni Gallerí Alþýðulista. Nefndin samþykkti samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til á næsta fundi.
Gallerí Alþýðulist óskar eftir hærri styrk vegna aukinnar aðsóknar í upplýsingamiðstöðina á undanförnum árum, meðal annars vegna lengingar ferðamannatímabilsins á svæðinu. Vegna þess stendur til að lengja opnunartímabil starfseminnar og það krefst aukinna fjárútláta.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hækka upphæð styrktarsamnings, sem gerður hefur verið ár hvert til styrktar starfsemi upplýsingamiðstöðvarinnar í Varmahlíð. Upphæð samningsins hefur ekki tekið breytingum frá árinu 2021 og er því lagt til að samningurinn fyrir árið 2026 verði uppreiknaður sem nemur vísitölu neyðsluverð, eða hækkun upp á 36,4%.
Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að ganga til samninga við Gallerí Alþýðulist og gera árssamning með ofangreindum forsendum til hliðsjónar, með möguleika á framlengingu.
Nefndin vísar málinu til byggðarráðs.
Tinna Kristín Stefánsdóttir óskar bókað:
VG og óháð harma að ekki sé hægt að verða að öllu leiti við beiðni Alþýðulistar um aukinn styrk, sérstaklega í ljósi þess hversu mikill fjöldi fólks leitar sér upplýsinga hjá þeirri upplýsingamiðstöð en á liðnu ári voru það tæplega 14 þúsund manns. Er Alþýðulist ein um að sinna slíkri upplýsingagjöf í firðinum sem stendur.
Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
"VG og óháð harma að ekki sé unnt að verða að fullu við beiðni Gallerís Alþýðulistar um aukinn styrk en upphæð samningsins hefur ekki breyst frá árinu 2021, þrátt fyrir almennar kostnaðarhækkanir á tímabilinu. Alþýðulist hefur því þurft að mæta auknum útgjöldum með hærri umboðslaunum af söluvöru handverkafólks og með verulegri sjálfboðaliðavinnu. Óskað var eftir að framlag vegna starfsmanns væri hækkað úr 3 milljónum í 4,5 milljón og að húsaleigu styrkurinn yrði hækkaður úr kr. 700.000 í kr. 1.200.000 vegna aukins launakostnaðar og almennra kostnaðarhækkana.
Meirihluti ásamt Byggðarlista hafnaði þeirri beiðni og lagði til að samningurinn fyrir árið 2026 verði uppreiknaður sem nemur vísitölu neysluverðs, eða hækkun upp á 36,4% en umbeðin hækkun myndi reiknast um 54%.
Alþýðulist gegnir mikilvægu hlutverki í upplýsingagjöf til ferðamanna á svæðinu. Á liðnu ári leituðu tæplega 14 þúsund manns til upplýsingamiðstöðvarinnar eftir upplýsingum. Þegar starfsemin opnar aftur nú um næstu mánaðamót verður hún að öllum líkindum ein um slíka þjónustu í firðinum, að minnsta kosti eru dyr hinnar upplýsingamiðstöðvarinnar lokaðar sem stendur. Ætlun félagsins er að lengja opnunartímann til að mæta lengingu ferðamannatímabilsins á svæðinu, sem óhjákvæmilega kallar á aukin fjárútlát.
Að okkar mati ber sveitarfélaginu að standa vörð um og lyfta því sem vel er gert í samfélaginu. Starfsemi sem dregur að sér þúsundir gesta og styður við menningu og atvinnulíf á svæðinu er verðmæt og mikilvægt að hún njóti stöðugleika. Þurfi að hækka enn meir umboðslaun til að halda rekstrinum gangandi getur dregið úr hvata handverkafólks til þátttöku í Alþýðulist og haft neikvæð áhrif á fjölbreytni og gæði starfseminnar. Það er val sveitarfélagsins að halda úti upplýsingamiðstöð og þá þarf að gera það með fullnægjandi hætti. Við teljum því mikilvægt að leitað verði leiða til að tryggja rekstrarumhverfi Gallerís Alþýðulistar til framtíðar."
Fulltrúar Byggðalista óskar bókað:
"Ánægjulegt er að orðið var við aukinni styrkbeiðni frá Alþýðulist og teljum við rétt að miða við 36,4% eða þá hækkun sem orðið hefur á neysluverðsvísitölu frá því að samningurinn var undirritaður. Samningsupphæð hefur staðið óbreytt frá árinu 2021 til ársins 2026. Við teljum æskilegra að endurskoða upphæðir reglulega fremur og væri það ákjósanlegast að endurskoða slíka saminga í samræmi við hækkun vísitölu hvers árs frekar en að gera svo verulega hækkun í einu."
Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Alþýðulist er félagsskapur með fjölþætta starfsemi þar sem sala handverks er veigamikill hluti tekjugrundvallar. Rekstur félagsins hefur verið ábyrgur, afkoman jákvæð á liðnum árum og handbært fé með ágætum. Sá þáttur starfseminnar sem snýr að upplýsingagjöf og móttöku gesta er hluti af heildarrekstri en ekki sjálfstætt, afmarkað stöðugildi á vegum sveitarfélagsins. Við mat á styrkbeiðninni var sérstaklega horft til jafnræðissjónarmiða og ábyrgðar í ráðstöfun opinbers fjármagns.
Ákvörðun atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar endurspeglar þá afstöðu að stuðningur sveitarfélagsins taki mið af eðli og umfangi starfseminnar hverju sinni. Með því að styðja með auknum hætti við starfsemi félagsins er unnt að auka opnunartíma starfseminnar og þar með gefst einnig færi á aukinni tekjuöflun sem gera má samhliða ráð fyrir."
Afgreiðsla 43. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með sjö atkvæðum. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir óskar bókað að hún situr hjá. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43 Framlagt erindi dags. 28.janúar 2026 frá Jónasi Atla Eyþórssyni og Sigríði Hrafnhildi Stefansdóttir f.h. nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þar sem óskað er eftir styrk til uppsetningar á leikritinu Stellu í Orlofi.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið og óskar nemendafélaginu innilega til hamingju með uppsetningu á þessu frábæra leikriti sem hefur slegið í gegn.
Nefndin samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð 75.000 kr. og hvetur nemendafélagið til að sækja um í Uppbyggingarsjóð SSNV fyrir næstu uppsetningu. Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 43 Lagðir fram til kynningar ársreikningar frá félagsheimilunum í Árgarði og Ketilás.
Lagt fram. Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.