Fræðslunefnd - 45
Málsnúmer 2602013F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026
Fundargerð 45. fundar fræðslunefndar frá 18. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 45 Lagðar fram skýrslur með samantekt um starfsdaga skólaárið 2024-2025 í Árskóla, Varmahlíðarskóla, Birkilundi, Tröllaborg og Tónlistarskóla Skagafjarðar. Í skýrslunum kemur fram það sem gert var á starfsdögum skólanna bæði þeim dögum sem eru á starfstíma nemenda og utan þess tíma. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að þessar skýrslur verðir lagðar fram á fyrsta fundi fræðslunefndar í október ár hvert fyrir skólaárið á undan. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar fræðslunefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 45 Skagafjörður setti sér reglur fyrir starfsmenn leikskóla vegna stuðnings við nám í leikskólakennarafræðum árið 2022 sem gilda til ársins 2027. Verkefnið hefur gefið góða raun og hafa talsvert margir starfsmenn bætt við sig menntun sem nýtist vel í leikskólum Skagafjarðar. Fræðslunefnd vill áfram stuðla að hærra menntunarstigi meðal starfsfólks en leggur áherslu á að fjöldi starfsmanna í námi valdi ekki erfiðleikum í daglegu starfi leikskóla héraðsins. Nefndin felur starfsfólki nefndarinnar að endurskoða reglur um stuðning í námi í leikskólakennarafræðum með það að markmiði að skýra betur hvar þolmörkin liggja hjá hverjum leikskóla þegar kemur að fjölda starfsmanna í námi hverju sinni. Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar fræðslunefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 45 Sumarlokanir Birkilundar og Tröllaborgar verða í 5 vikur eins og staðfest skóladagatal 2025-2026 gerir ráð fyrir.
Síðustu ár hafa ólíkar útfærslur sumarleyfistímabils barna verið prófaðar í leikskólanum Ársölum. Leikskólinn hefur verið lokaður í fjórar vikur, opinn allt sumarið og lokaður í tvær vikur. Alltaf hefur verið gerð krafa um að börn fari að lágmarki í samfellt 4 vikna sumarfrí. Erfiðlega hefur gengið að manna þær stöður sem þurfti í Ársölum yfir sumartímann og einnig gengið illa að uppfylla orlofsskyldur gagnvart starfsmönnum.
Á þeim forsendum leggur fræðslunefnd til að sumarlokanir Ársala verði frá og með 10. júlí til og með 7. ágúst 2026. Á sumarleyfistíma mun framkvæmdasvið sveitarfélagsins vinna í viðhaldi á lóð Ársala þar sem m.a. á að bæta við leiktækjum og lagfæra lóðina skv. áætlun sem búið er að gera. Einnig mun framkvæmdasvið sveitarfélagsins vinna að lagfæringum innandyra í Ársölum með áherslu á að bæta hljóðvist, í samráði við leikskólastjóra.
Boðið verður upp á niðurfellingu gjalda í leikskólum Skagafjarðar ef sumarleyfi eru tekin á tímabilinu 8. júní til 9. júlí 2026. Skilyrði er að leyfið sé að lágmarki vika í senn. Leikskólastjórnendur munu senda út nánari upplýsingar til foreldra. Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar fræðslunefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 45 Auðnast ehf. hefur lagt fram tillögur til úrbóta í leikskólanum Ársölum. Tillögurnar snúa að þremur þáttum; Manneklu og fjarvistum, stjórnun og stjórnsýslu. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna með tillögurnar í samræmi við umræðu nefndarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar fræðslunefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 45 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar fræðslunefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.