Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 5
Málsnúmer 2602009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026
Fundargerð 5. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi frá 11. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 5 Undir þessum dagskrárlið sat Jón Þór Þorvaldsson arkitekt frá Úti og inni arkitektum.
Farið yfir fyrirliggjandi teikningar að heildarskipulagi endurbóta Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi, ásamt teikningu fyrirhugaðrar nýbyggingar mötuneytisaðstöðu.
Byggingarnefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs ásamt arkitekt vinnu við fyrirliggjandi teikningar, í samræmi við ábendingar sem fram komu á fundinum. Bókun fundar Fundargerð 5. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.