Fara í efni

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi

5. fundur 11. febrúar 2026 kl. 12:00 - 13:47 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
  • Kristín Halla Bergsdóttir skólastjóri tónlistarskóla
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjórni stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.GAV Mötuneytishús

Málsnúmer 2601221Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sat Jón Þór Þorvaldsson arkitekt frá Úti og inni arkitektum.

Farið yfir fyrirliggjandi teikningar að heildarskipulagi endurbóta Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi, ásamt teikningu fyrirhugaðrar nýbyggingar mötuneytisaðstöðu.

Byggingarnefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs ásamt arkitekt vinnu við fyrirliggjandi teikningar, í samræmi við ábendingar sem fram komu á fundinum.

Fundi slitið - kl. 13:47.