Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42

Málsnúmer 2602002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026

Fundargerð 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 5. febrúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Á fundinn komu Alessandra Schnider og Ottó Elíasson, frá EIMI, og kynntu gagnvirka skráningu heitavatnsblæðinga í Skagafirði og staðsetningu þeirra ásamt hugmyndum um nýtingu orku sem tapast vegna heitavatnsblæðinga.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd þakkar gestunum fyrir góða kynningu og bendir áhugasömum um nýtingu affallsvatnsins á að hafa samband við Hjörvar Halldórsson sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs eða fulltrúa EIMS.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Hjörvar Halldórsson og Sigurður Arnar Friðriksson fóru yfir fundi sem þeir áttu með fulltrúum Múlaþings annars vegar og Þingeyjasveitar hins vegar um meðhöndlun lífræns sorps. Jafnframt voru ræddar hugmyndir um prófanir á jarðgerðartækjum og útfærslu þeirra prófana með það að framtíðarmarkmiði að lækka kostnað við söfnun og úrvinnslu lífræns úrgangs.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela Hjörvari sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og Sigurði Arnari forstöðumanni framkvæmda að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Háeyri 8, L197232 - (Háeyri 6 og 8) kynnt.
    Þann 11.12.2025 samþykkti skipulagsnefnd Skagafjarðar umsókn FISK-Seafood, lóðarhafa Háeyrar 6,landnr. 179232, og Háeyrar 8, landnr. 197574, um heimild til að láta vinna breytingu á deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar á sinn kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í bókun skipulagsnefndar var minnt á að skipulagið skildi unnið í samráði við landbúnaðar- og innviðanefnd Skagafjarðar, sbr. Hafnarreglugerð Skagafjarðar.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Farið yfir fund sem haldinn var með fulltrúum Vegagerðarinnar á Akureyri fimmtudaginn 29. janúar sl. Fyrir hönd sveitarfélagsins voru á fundinum frá landbúnaðar- og innviðanefnd þau Einar. Einarsson, Sólborg S. Borgarsdóttir og Sveinn F. Úlfarsson, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Hjörvar Halldórsson sviðstjóri veitu- og framkvæmdarsviðs.
    Á fundinum var farið yfir þau fjölmörgu verkefni sem bíða úrlausnar í vegamálum í Skagafirði, en hér er bæði hátt hlutfall malarvega ásamt því að í sveitarfélaginu er 21 einbreið brú. Þörfin fyrir viðhaldi og endurbótum vega er því mikil.
    Fram kom á fundinum að einu verulegu vegaumbæturnar sem áætlar eru næstu 5 árin eru uppbygging og endurgerð á Sæmundarhlíðarvegi og Hegranesvegi frá Sauðárkróksbraut að Kárastöðum. Báðar þessar framkvæmdir eru á núverandi áætlun og verða framkvæmdar árin 2028-2029. Verði tillaga að nýrri samgönguáætlun að veruleika er ekki útlit fyrir að þetta breytist því gert er ráð fyrir í þeirri áætlun að framlag til tengivega lækki frá því sem áður var áætlað og því ekki líkur á hraðari eða meiri framkvæmdum hér. Engar áætlanir eru um fækkun eða endurnýjun einbreiðra brúa, en til þess skortir fjármagn. Skoða á möguleika þess að laga brúna yfir Merkigil, en sú brú þarf verulega á viðhaldi að halda. Verði fyrirliggjandi tillaga að samgönguáætlun að veruleika óbreytt koma til framkvæmda Fljótagöng og endurbygging Siglufjarðarvegar frá Stafá að Ketilási. Gert er ráð fyrir að þær framkvæmdir standi yfir frá 2027 til 2031.
    Rætt var einnig um brýna þörf á viðhaldi girðinga með vegum og þá sérstaklega Þverárfjallsvegi og með þjóðvegi eitt. Verða þau mál skoðuð áfram en í núverandi tillögu að samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir auknu fjármagni til girðinga með vegum, ásamt því að nýr ytri garður við Sauðárkróks höfn er ekki að fullu fjármagnaður fyrir árið 2030.
    Fulltrúar sveitarfélagsins Skagafjarðar þakka fulltrúum Vegagerðarinnar góðan og upplýsandi fund, en ljóst er að verulegt fjármagn vantar í tillögu að samgönguáætlun 2026-2040, og framkvæmdaráætlun 2026-2030, sem nú eru í vinnslu Alþingis.

    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Kynnt skýrsla - Framtíðin og íslenskar hafnir Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Hafnasambandsþing 2026 verður haldið í Stapa í Reykjanesbæ 22.-23. október 2026.
    Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 42 Til kynningar - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026 Bókun fundar Afgreiðsla 42. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.