Félagsmála- og tómstundanefnd - 41
Málsnúmer 2601013F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 46. fundur - 25.02.2026
Fundargerð 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 22. janúar 2025 var lögð fram til afgreiðslu á 46. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Lagður fram tölvupóstur foreldra, iðkenda 8. flokks stúlkna í körfubolta Tindastóls /Skallagríms þar sem sótt er um styrk í afreksíþróttasjóð ungmenna í Skagafirði vegna þátttöku flokksins á fjölliðamóti í Svíþjóð n.k. vor. Með vísan í reglur um afreksíþróttasjóð ungmenna í Skagafirði er erindinu hafnað, þar sem sjóðnum er ætlað að styrkja ungmenni til þátttöku í landsliðsverkefnum. Nefndin óskar iðkendum góðs gengis á mótinu. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Málið áður á dagskrá 39. fundar nefndarinnar 27. október sl. tekið upp aftur til þess að uppfæra gjaldskrá. Nefndin samþykkir samhljóða uppfærða gjaldskrá og vísar til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Lagt fram minnisblað frá leiðtoga frístunda- og íþróttamála um aðsóknartölur sundlauga í Skagafirði árið 2025. Aðsóknin var með miklum ágætum og voru til að mynda sett tvö aðsóknarmet, annars vegar sóttu tæplega 106.000 gestir allar þrjár laugarnar heim og hins vegar voru gestir í Sundlaug Sauðárkróks rétt rúmlega 57.000 talsins. Alls sóttu rúmlega 25.000 gestir laugina á Hofsósi og í Varmahlíð voru gestir laugarinnar um 23.800 talsins árið 2025. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Lagður fram tölvupóstur frá fulltrúa árgangs ´71 á Suðárkróki sem halda Króksblót 7. febrúar n.k. óskað er eftir lækkun leigugjalds á íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Nefndin hafnar samhljóða erindinu á forsendum 4. gr. reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds. Nefndin óskar aðilum undirbúningshóps góðs gengis og skemmtunar. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Fundargerð Ungmennaráðs frá 24. október s.l. lögð fram til kynningar. Fundargerðina má nálgast á heimasíðu Skagafjarðar undir aðrar nefndir. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Föstudaginn 23. janúar mun Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir málþingi um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar. Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir opið samtal um framtíðarsýn, stefnumótun og áskoranir í veitingu þjónustu við fatlað fólk. Sveitarstjóri og leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks sækja málþingið. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Lögð fram til kynningar 3. fundargerð ráðsins frá 8.janúar sl. Fundargerðina má nálgast á heimasíðu Skagafjarðar undir aðrar nefndir.
Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Lögð fram til kynningar fundargerð nr. 42 frá 19. janúar 2026 Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 41 Lagt fram eitt mál, fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 41. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 46. fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2026 með níu atkvæðum.