Fræðslunefnd - 44
Málsnúmer 2601010F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 45. fundur - 21.01.2026
Fundargerð 44. fundar fræðslunefndar frá 15. janúar 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 45. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 44 Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, ráðgjafi Ásgarðs skólaráðgjafar kom inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og kynnti menntastefnu fyrir Skagafjörð ásamt aðgerðaráætlun innleiðingarinnar.
Menntastefna Skagfjarðar 2026-2031 ásamt aðgerðaráætlun um innleiðingu stefnunnar með áorðnum breytingum lögð fram til samþykktar. Ásgarður skólaráðgjöf leiddi vinnuna ásamt stýrihóp. Haldnir hafa verið fjölmargir fundir með hagsmunaaðilum skólasamfélagsins og jafnframt hafa verið haldnir opnir fundir þar sem íbúum Skagafjarðar hefur gefist kostur á að koma með ábendingar og hugmyndir við stefnumótunarvinnuna. Menntastefna Skagafjarðar er leiðarljós skólastarfs í Skagafirði og nær hún til leik-, grunn-, og tónlistarskóla í Skagafirði.
Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla menntastefnu og þakkar öllum þeim sem komið hafa að gerð hennar fyrir þeirra framlag. Fræðslunefnd hvetur íbúa til að kynna sér stefnuna vel. Fræðslunefnd samþykkir stefnuna samhljóða og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar fræðslunefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 44 Lögð fram styrkbeiðni frá ME félagi Íslands vegna dreifingar fræðsluefnis fyrir starfsfólk grunnskóla árið 2026. Fræðsluefninu er ætlað að auka skilning á vanda barna sem eru með ME sjúkdóminn. Nefndin telur sér ekki fært að styrkja félagið og samþykkir samhljóða að hafna erindinu og óskar ME félagi Íslands alls góðs í störfum sínum Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar fræðslunefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 44 Mönnun, staða innritunar barna og starfsumhverfi leikskóla í Skagafirði hafa verið til umfjöllunar í fræðslunefnd. Umsóknir hafa verið að berast um lausar stöður, ráðningar farið fram og starfsemi leikskólanna hefur gengið vel undanfarnar vikur. Verið er að innrita börn í samræmi við mönnun. Leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar upplýsti jafnframt um að vinna við þemagreiningu Auðnast ehf. er á lokametrunum. Afurðin, þ.m.t. tillögur til úrbóta, verður tekin til umfjöllunar á næsta fundi fræðslunefndar.
Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar fræðslunefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 44 Heillaspor er heildræn nálgun sem styður við velferð, öryggi og virka þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi. Vinnuferlar Heillaspora styðja fullorðna í því að efla seiglu og vellíðan barna, sérstaklega þeirra sem hafa upplifað áföll eða búa við erfiða félags-, efnahags- og menningarlega stöðu. Fjölskyldusvið Skagafjarðar hefur kynnt sér verkefnið og vill gera samstarfsamning við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu um innleiðingu Heillaspora í fræðsluþjónustu Skagafjarðar. Lögð fram kostnaðaráætlun, yfirlit yfir styrki sem hægt er að sækja um fyrir verkefnið og drög að samstarfsamningi við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu. Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fjölskyldusvið innleiði Heillaspor í fræðsluþjónustu sviðsins og felur leiðtoga farsældar, fræðslu og ráðgjafar að gera samstarfssamning við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu í samræmi við umræður á fundinum.
Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar fræðslunefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 44 Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 6/2026, „Drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum“. Umsagnarfrestur er til og með 02.02.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar fræðslunefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.