Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38

Málsnúmer 2511023F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 44. fundur - 10.12.2025

Fundargerð 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 27. nóvember 2025 var lögð fram til afgreiðslu á 44. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38 Fyrir fundinum liggja upplýsingar um áætlaða endurgreiðslu ríkisins vegna refa- og minkaveiða fyrir árið 2025, en ljóst er að þau verð sem ríkið áætlar að greiða eru langt undir raunkostnaði veiðanna.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að skora á Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftlagsráðherra, að sjá til þess að Náttúruverndarstofnun (áður Umhverfisstofnun) endurreikni og uppfæri til núgildandi verðlags tillögur að viðmiðunartöxtum minka- og refaveiða. Síðasta tillaga frá Náttúruverndarstofnun (þá Umhverfisstofnun) barst ráðuneytinu árið 2018. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni var viðmiðunartaxti upp á 7000 kr. fyrir grendýr og 1600 kr. fyrir yrðlinga settur árið 1997. Taxtinn var þá ákveðinn með því að taka saman meðalgreiðslur sveitarfélaga fyrir hvert unnið grendýr árið 1996. Upphæð vegna minks var ákveðin fyrir 1997 og hefur ekki breyst síðan þá, en gögn um útreikninga á bakvið upphæðina finnast ekki hjá stofnuninni. Þetta eru óásættanlega vinnubrögð og eru viðmiðunartaxtar í engu samræmi við raunkostnað veiðanna eða greidd verðlaun fyrir refi og mink í Skagafirði.

    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 44. fundi sveitarstjórnar 10. desember 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38 Lögð fram umsókn dags. 20.11.2025. frá Kaupfélagi Skagfirðinga og Fisk Seafood ehf. um breytingu á deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar vegna lóðamarka lóðanna Eyrarvegs 18, L143288, og Eyrarvegs 20, L143289.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir erindið samhljóða og vísar til Skipulagsnefndar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 44. fundi sveitarstjórnar 10. desember 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38 Lagðar fram tilkynningar frá Vegagerðinni dags. 12. og 13. nóv. sl. um niðurfellingu eftirfarandi vega af vegaskrá:
    Ennisvegur nr. 7824-01
    Hluti Reykjaborgarvegar nr. 7515-01
    Kimbastaðavegur nr. 7490-01
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 44. fundi sveitarstjórnar 10. desember 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38 Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 19.11.2025. um aðgang tollayfirvalda að rafrænu eftirliti hafna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 44. fundi sveitarstjórnar 10. desember 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38 Lögð fram til kynningar samantekt Innviðaráðuneytis, Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga um kortlagningu aðgerða sveitarfélaganna í umhverfis- og loftslagsmálum. Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 44. fundi sveitarstjórnar 10. desember 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 38 Lögð fram til kynningar útboðslýsing vegna veiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá. Landsamband veiðifélaga sér um framkvæmd útboðsins fyrir hönd veiðifélagsins. Tilboðum skal skila fyrir kl. 15 þann 3. mars 2026.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 44. fundi sveitarstjórnar 10. desember 2025 með níu atkvæðum.