Félagsmála- og tómstundanefnd - 40
Málsnúmer 2511019F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 45. fundur - 21.01.2026
Fundargerð 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 11. desember 2025 var lögð fram til afgreiðslu á 45. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Formaður lagði til að Sandra Björk Jónsdóttir nýkjörinn aðalmaður verði kosin varaformaður nefndarinnar í stað Guðlaugs Skúlasonar sem er nýkjörinn varamaður. Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast Sandra Björk því rétt kjörin. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, ráðgjafi Ásgarðs skólaráðgjafar kom inn á fundinn í gegnum fjarfundabúnað og kynnti drög að endurskoðaðri menntastefnu fyrir Skagafjörð. Vinna að endurskoðun stefnunnar hefur staðið yfir síðustu mánuði og mikið samráð hefur verið haft við samfélagið, meðal annars með íbúafundum, könnunum ásamt því að rýnt hefur verið i fyrirliggjandi gögn. Búið er að kynna endurskoðaða stefnu á öllum skólastigum sveitarfélagsins ásamt því að stefnan hefur verið í opnu samráði. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir vorönn 2026, sem eru eftirfarandi:
22.janúar, 12.febrúar, 26.mars, 16.apríl, 7. maí. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar.
Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Lögð fram til kynningar skýrsla um frumkvæðisathugun á búsetuúrræðum fatlaðs fólks - 1. fasi. Í apríl 2024 hóf Gæða- og eftirlitsstofnun ríkisins frumkvæðisathugun á búsetuúrræðum fyrir fullorðið fatlað fólk sem nær til allra svetirarfélaga landsins. Frumkvæðisathugunin skiptist í tvo fasa og er þeim fyrri nú lokið með útgáfu skýrslu sem er á heimasíðu GEV. Í skýrslunni setur GEV fram ábendingar til sveitarfélaganna varðandi þær úrbætur sem stofnunin telur mikilvægar út frá svörum sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að síðari fasa frumkvæðisathugunnar verði lokið á fyrri hluta næsta árs, en hann felur í sér ítarlegar úttektir á þjónustu í öllum búsetuúrræðum fyrir fullorðið fatlað fólk. Sveitarfélögunum var falið að framkvæma úttektir á úrræðunum með ítarlegum spurningarlista og leiðbeiningum frá GEV, ásamt því að skila inn tillögum að úrbótaáætlunum. Skagafjörður hefur skilað inn gögum innan tilskilins tímafrests og er með vinnu í gangi varðandi verkferla og gæðahandbóka varðandi þjónustu og innra mat. Styrkur að upphæð 13 m.kr. fékkst til vinnunar frá Jöfnunarsjóði. Nefndin þakkar leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks fyrir góða vinnu og utanumhald við þessa vinnu. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá dómsmálaráðuneytinu, kynnt er til samráðs drög að landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Lagðar fram til kynningar fjórar fundargerðir nr. 39 frá október sl. nr. 40 og 41 frá nóvember sl. og nr. 42 frá desember 2025. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Lögð fram til kynningar ein fundargerð frá fundi nr. 66 frá 1. desember 2025.
Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 40 Lagt fram eitt mál, fært í trúnaðarbók Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 45. fundi sveitarstjórnar 21. janúar 2026 með níu atkvæðum.