Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38

Málsnúmer 2510012F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 43. fundur - 19.11.2025

Fundargerð 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 16. október 2025 lögð fram til afgreiðslu á 43. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð.

Jóhanna Ey Harðardóttir kvaddi sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.

    Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

    Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Framlögð drög að auglýsingu eftir rekstraraðila félagsheimilisins.

    Drög að auglýsingu samþykkt samhljóða og starfsmanni nefndarinnar falið að koma henni í birtingu á heimasíðu sveitarfélagsins, samfélagsmiðla og Sjónhorninu.



    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Umræður um viðburðinn.

    Jólatrésskemmtunin í ár fer fram 29. nóvember nk., en venju samkvæmt fer hátíðin ávallt fram fyrsta laugardag í aðventu.

    Nefndin fór yfir tillögur starfsmanns og felur viðkomandi að vinna áfram að dagskrá.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Framlagt erindi frá Ferðamálastofu dags. 7. október 2025 þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026.

    Opnað var fyrir umsóknir 7. október sl. og umsóknarfrestur er til kl. 13:00, þriðjudaginn 4. nóvember 2025.

    Nefndin hvetur áhugasama aðila í Skagafirði til þess að kynna sér umsóknarferlið og sækja um styrk ef við á fyrir komandi ár.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Framlagt erindi frá Sigurjóni Friðjónssyni og Guðbjörgu Bjarnadóttur f.h. Norðursýnar dags. 22. september 2025 þar sem starfsemi fyrirtækisins er kynnt og óskað er eftir mögulegu samstarfi.

    Markmið fyrirtækisins er að aðstoða fyrirtæki, stofnanir og aðra aðila á svæðinu með stafræna markaðssetningu.

    Lagt fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Matarkistan Skagafjörður snýst um samvinnu fjölbreyttra matvælaframleiðanda í Skagafirði að því að efla skagfirska matarmenningu og koma henni á framfæri.

    Umræður um verkefnið.

    Nefndin samþykkir samhljóða að tengiliður verkefnisins verði hér eftir verkefnastjóri matarupplifunar hjá Byggðarsafni Skagafjarðar.

    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 5 - menningarmál lögð fram og tekin til seinni umræðu.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 með áorðnum breytingum og vísar henni til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 38 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 13 - atvinnu- og kynningarmál lögð fram og tekin til seinni umræðu.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og vísar henni til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 38. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 43. fundi sveitarstjórnar 19. nóvember 2025 með níu atkvæðum.