Fara í efni

Aðalgata 14_neðri hæð - Tilkynnt framkvæmd.

Málsnúmer 2509251

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 44. fundur - 10.12.2025

Hjá byggingarfulltrúa liggja fyrir gögn frá Norðan 14 ehf., eiganda neðri hæðar fjöleignahúss með fasteignanúmerið F2131128 sem stendur á lóðinni númer 14 við Aðalgötu á Sauðárkróki og varðar tilkynnta framkvæmd, breytingu á útliti vesturhliðar húss. Fyrir liggur samþykki Merkisbræðra sf., eiganda efrihæðar með fasteignanúmerið F2131129.
Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
Fyrirhuguð framkvæmd samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu og framlagðir uppdrættir uppfylla ákvæði laga og reglugerða.
Þar sem tilkynnt framkvæmd er innan verndarsvæðis í byggð óskar byggingarfulltrúi eftir því við sveitastjórn Skagafjarðar að tekin sé afstaða til umsóknarinnar sbr. 6. gr. laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð. Meðfylgjandi uppdrættir gerðir hjá Áræðni ehf. af Ingvari Gýgjari Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3389, númer A-101 og A-102, dagsettir 02.09.2025 2025, ásamt umsögn Minjastofnunnar Íslands, dagsettri 10. október 2025.

Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að fela byggingarfulltrúa að auglýsa hina fyrirhuguðu framkvæmd og skal auglýsingatími vera tvær vikur. Hafi ábendingar/athugasemdir varðandi fyrirhugaða framkvæmd ekki borist á auglýsingatíma er byggingarfulltrúa falin afgreiðsla málsins.