Fræðslunefnd - 40
Málsnúmer 2508020F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 41. fundur - 17.09.2025
Fundargerð 40. fundar fræðslunefndar frá 28. ágúst 2025 lögð fram til afgreiðslu á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 40 Lögð fram tillaga að 2,7% hækkun gjaldskrár tónlistarskóla sem er í samræmi við verðlagsbreytingar út frá þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Veittur er 25% afsláttur ef fleiri en einn nemandi er saman í hljóðfæranámi. Veittur er systkinaafsláttur, 25% fyrir annað barn, 50% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn. Tillagan samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar fræðslunefndar staðfest á 41. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum. -
Fræðslunefnd - 40 Lögð fram tillaga að 2,7% hækkun gjaldskrár í grunnskóla sem er í samræmi við verðlagsbreytingar út frá þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Morgunverður hækkar úr 376 krónum í 386 krónur. Hádegisverður hækkar úr 780 krónum í 801 krónur. Skólamáltíðir nemenda eru að fullu niðurgreiddar af sveitarfélaginu og ríkinu. Tillagan samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar fræðslunefndar staðfest á 41. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 40 Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá leikskólastjórum um stöðu á biðlistum, mönnun og aðlögun nýrra nemenda. Í Ársölum er búið að innrita 37 börn en vegna manneklu hefur ekki verið hægt að taka öll börn inn í aðlögun, eru því fimm börn á aldrinum 14-16 mánaða á biðlista, það elsta fætt í lok júní 2024. Nægt pláss er til að taka öll börn inn en skortur er á starfsfólki og fáar umsóknir borist um störf. Skólastjórnendur og starfsfólk Ársala hafa lagst á eitt til að koma sem flestum börnum inn á leikskólann og vill nefndin þakka þeim sérstaklega fyrir útsjónarsemi og sveigjanleika.
Í Tröllaborg eru engin börn á biðlista. Á Hofsósi er fullmannaður leikskóli miðað við barnafjölda. Á Hólum er fjölgun á börnum og þar vantar starfsmann í eitt stöðugildi til að mæta undirbúningstíma, vinnutímastyttingu kennara og styttri vinnuviku hjá almennum starfsmönnum frá og með 1. október n.k.
Í Birkilundi er gert ráð fyrir að ný leikskólabygging verði tilbúin um miðjan október. Um 20 börn eru á biðlista en engin börn hafa verið innrituð. Skertur opnunartími hefur verið í Birkilundi vegna mönnunarvanda en frá 1. september verður full opnun í leikskólanum. Búið er að manna leikskólann miðað við þann barnafjölda sem er í leikskólanum núna en ráða þarf í nokkur stöðugildi þegar nýr leikskóli verður tekinn í notkun.
Auglýsingar eru í loftinu fyrir alla þrjá leikskólana. Í Skagafirði fer fram metnaðarfullt leikskólastarf og hvetur fræðslunefnd áhugasama til að sækja um laus störf í leikskólum sveitarfélagsins. Fræðslunefnd þakkar leikskólastjórum fyrir greinagóða samantekt á stöðu mála í leikskólunum.
Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar fræðslunefndar staðfest á 41. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum. -
Fræðslunefnd - 40 Lagðar fram til kynningar Sjálfsmatsskýrslur Árskóla og Varmahlíðarskóla 2024-2025 Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar fræðslunefndar staðfest á 41. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 40 Lagt fram tvö mál, fært í trúnaðarbók Bókun fundar Afgreiðsla 40. fundar fræðslunefndar staðfest á 41. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum.