Skipulagsnefnd - 77
Málsnúmer 2506017F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 39. fundur - 23.06.2025
Fundargerð 77. fundar skipulagsnefndar frá 18. júní 2025 lögð fram til afgreiðslu á 39. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulagsnefnd - 77 Hlynur Torfi Torfason skipulagsráðgjafi frá VSÓ ráðgjöf situr fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og fer yfir tillögu að Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna og senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar skv. 3. mrg. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í framhaldinu auglýsa hana skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Endurskoðun aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040" síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 77 K-tak sækir um parhúsalóðina við Nestún 16 á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta umsækjanda parhúsahúsalóðinni Nestún 16 á Sauðárkróki. Bókun fundar Afgreiðsla 77. fundar skipulagsnefndar staðfest á 39. fundi sveitarstjórnar 23. júní 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 77 Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen þinglýstir eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45, 550 Sauðárkróki (F2132154) óska hér með eftir heimild til að stækka svalir á íbúð á 2 hæð. skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki 79012100, gerður af Ínu Björk Ársælsdóttir hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Meðfylgjandi uppdráttur sýnir tillöguteikningu með afstöðumynd og ásýndarmyndum í þrívídd sem gerir grein fyrir fyrirhugaðri stækkun svala sem sótt er um heimild fyrir. Ekki er um fullunnin hönnungargögn að ræða á þessu stigi.
Um er að ræða stækkun á svölum til suðurs um 6,5 metra. Gert er ráð fyrir þremur burðarsúlum syðst. Svæðið undir svölum verður nýtt sem bílskýli. Framkvæmdin er innan núv. lóðarmarka fasteignarinnar.
Í ljósi þess að deiliskipulag er ekki í gildi fyrir svæðið, er óskað eftir að málið verði tekið til umfjöllunar hjá skipulagsnefnd. Tekið hefur verið mið af grenndaráhrifum og eru það helst nágrannar aðliggjandi lóða sem gætu orðið fyrir áhrifum, auk fasteignareiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45.
Framkvæmdin er talin falla vel að nærliggjandi byggð og hagsmunir nágranna skerðist að takmörkuðu leyti hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta nýtan leika og aðgengi að útisvæði, án þess að skerða ásýnd eða hagsmuni nágranna.
Með erindinu fylgir einnig samþykki eiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Skagfirðingabraut 45 - Beiðni um heimild til að stækka svalir" síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 77 Málið áður á dagskrá 76. fundi skipulagsnefndar þann 12.06.2025, þá bókað:
"Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 26. maí síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um leyfi til að til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 8 við Fornós á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Klöpp Arkitektar-Verkfræðingar ehf. af umsækjanda. Uppdrættir í verki 3358, númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir maí 2025, uppfærðir 5. júní 2025. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Fornós 5, 6, 7, 9 og 10 og Hólmagrund 7, 9, 11, 13 og 15."
Hrefna Gerður Björnsdóttir lóðarhafi Fornós 8 óskar eftir að framkvæmdin verði einnig grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Fornós 3 og 4.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Fornós 3, 4, 5, 6, 7, 9 og 10 og Hólmagrund 7, 9, 11, 13 og 15. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Fornós 8 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa." síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 77 Málið áður á dagskrá á 76. fundi skipulagsnefndnarinnar þann 12.06.2025 þar sem kynnt voru drög að umsögn sveitastjórnar frá fjarlægðarreglu d-liðar 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar. Var þá bókað: "Lagt fram til kynningar drög að bréfi sveitarstjórnar til Húsnæðis- og félagsmálaráðuneytisins varðandi umsókn um undanþágu frá ákvæðum skipulagsreglugerðar varðandi 50 m fjarlægðarmörk húsbyggingar frá vegi fyrir Hólagerði L146233."
Skipulagsfulltrúi leggur fram og kynnir drög að samantekt sinni um afgreiðslu málsins. Málið var rætt á grunni samantektarinnar.
Skipulagsnefnd lýsir sig sammála þeim sjónarmiðum sem fram koma í drögum skipulagsfulltrúa að samantekt til sveitarstjóra um málið og samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að ljúka frágangi samantektarinnar og umræddra draga að umsögn sveitarfélagsins í samráði við lögmann sveitarfélagsins og leggja fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu. Að henni lokinni vinni skipulagsfulltrúi málið gagnvart ráðuneytinu í samráði við sveitarstjórn. Að fenginni niðurstöðu ráðuneytisins verði afstaða til byggingarreits tekinn til endanlegrar afgreiðslu.
Bókun fundar Forseti gerir það að tillögu sinni að fresta afgreiðslu þessa máls. Samþykkt með níu atkvæðum.