Félags- og tómstundanefnd - 273
Málsnúmer 1912010F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 392. fundur - 15.01.2020
Fundargerð 273 fundar félags- og tómstundanefndar frá 17. desember 2019 lögð fram til afgreiðslu á 392. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félags- og tómstundanefnd - 273 Tekin fyrir umsögn skólaráðs Árskóla. Ráðið fellst ekki á framlagðar tillögur félags- og tómstundanefndar um staðsetningu hjólabrettaaðstöðu sunnan íþróttahúss meðan lóð Árskóla hefur ekki verið skipulögð. Ráðið skorar jafnframt á sveitarfélagið að flýta hönnun og skipulagi skólalóðar Árskóla þannig að finna megi hjólabrettaaðstöðu varanlegan stað. Tekið skal fram að á áætlun 2020 er gert ráð fyrir 3 milljónum króna til skipulags lóðarinnar við Árskóla. Félags- og tómstundanefnd leggst ekki gegn því að hjólabrettaaðstöðunni verði fundinn annar staður verði það til að flýta framkvæmdinni. Málinu vísað til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 273. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 392. fundi sveitarstjórnar 15. janúar 2020 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 273 Íþróttafélagið Molduxar óska eftir gjaldfrjálsum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna jólamóts félagsins þann 26. desember n.k. Félags- og tómstundanefnd samþykkir að fella niður gjald fyrir afnot af húsinu þennan dag líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Nefndin fagnar þessum árlega viðburði Molduxa sem dregur að sér fjölda fólks, bæði iðkendur í körfubolta og gesti á öllum aldri. Erindið er samþykkt. Guðný Axelsdóttir formaður nefndarinnar sat hjá við afgreiðslu á þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 273. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 392. fundi sveitarstjórnar 9. janúar 2020 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 273 Eitt mál tekið fyrir, synjað, fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 273. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 392. fundi sveitarstjórnar 15. janúar 2020 með níu atkvæðum.