Fara í efni

Fræðslunefnd

38. fundur 15. maí 2025 kl. 16:15 - 16:40 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Hrund Pétursdóttir formaður
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
    Aðalmaður: Agnar Halldór Gunnarsson
  • Tinna Kristín Stefánsdóttir varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
  • Sigrún Eva Helgadóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Rakel Kemp Guðnadóttir leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar
  • Trostan Agnarsson skólastjóri grunnskóla
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
Fundargerð ritaði: Rakel Kemp Guðnadóttir Leiðtogi farsældar, fræðslu og ráðgjafar
Dagskrá

1.Viðbótarniðurgreiðslur 2025

Málsnúmer 2504196Vakta málsnúmer

Lögð fram uppfærð tekjuviðmið Skagafjarðar vegna viðbótarniðurgreiðslna á leikskólagjöldum, dagvistunargjöldum og frístundagjöldum. Ný tekjuviðmið gilda frá 1. janúar 2025. Fræðslunefnd samþykkir viðmiðin samhljóða fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðarráðs.

2.Kennslukvóti 2025-2026

Málsnúmer 2504010Vakta málsnúmer

Tillaga að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2025-2026 lögð fram. Tillagan er unnin í samstarfi við stjórnendur og tekur mið af mörgum þáttum svo sem nemendafjölda, fjölda nemenda með annað móðurmál en íslensku, samsetningu nemendahópa o.fl. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða.

3.Fundir fræðslunefndar á haustönn 2025

Málsnúmer 2505032Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2025, sem eru eftirfarandi:
28. ágúst, 2. okt, 30. okt, 27. nóv. Samþykkt samhljóða með fyrirvara um breytingar.

4.Yfirlit reksturs málaflokks 04 á fyrsta ársfjórðungi 2025

Málsnúmer 2505090Vakta málsnúmer

Yfirlit yfir rekstur málaflokks 04, fræðslu- og skólaþjónusta á fyrsta ársfjórðungi 2025 lagt fram til kynningar.

5.Fundargerðir skólaráðs Varmahlíðarskóla 2024-25

Málsnúmer 2411070Vakta málsnúmer

Fundargerð skólaráðs Varmahlíðarskóla frá 6. maí 2025 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:40.