Fara í efni

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki

3. fundur 22. janúar 2025 kl. 11:30 - 12:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Gísli Sigurðsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Berglind Þorsteinsdóttir forstöðumaður byggðasafns
  • Kristín Sigurrós Einarsdóttir forstöðumaður héraðsbókasafns
  • Sólborg Una Pálsdóttir forstöðumaður héraðsskjalasafns
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Sigfús Ingi Sigfússon sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Forvalsgögn vegna menningarhúss

Málsnúmer 2410069Vakta málsnúmer

Helena Margrét Áskelsdóttir frá VSÓ ráðgjöf sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Helena lagði fram yfirferð á mati á hæfi umsækjenda í forvali vegna útboðsins Menningarhús í Skagafirði - Hönnun nýbyggingar og endurbóta á eldra húsnæði í samræmi við gr. 0.3 í forvalsgögnum.

Skv. gr. 0.5.1 í forvalslýsingu hljóta þrír (3) stigahæstu umsækjendur þátttökurétt í lokaðri hönnunarsamkeppni þ.e.a.s. þrepi II. Lagt er til í ljósi mats VSÓ á forvalsumsóknum að eftirfarandi umsækjendum verði boðin þátttaka í þrepi II:
- Arkís arkitektar ehf.
- VSB verkfræðistofa ehf.
- Yrki arkitektar ehf.

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki samþykkir samhljóða að bjóða ofangreindum aðilum þátttöku í þrepi II í hönnunarsamkeppni um menningarhús á Sauðárkróki.

Fundi slitið - kl. 12:00.