Fara í efni

Forvalsgögn vegna menningarhúss

Málsnúmer 2410069

Vakta málsnúmer

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 2. fundur - 08.10.2024

Undir þessum dagskrárlið tóku Sandra Dís Dagbjartsdóttir og Helena Margrét Áskelsdóttir frá VSÓ ráðgjöf þátt í fundinum.
Farið yfir drög að forvalsgögnum vegna þátttökurétts í lokaðri hönnunarsamkeppni vegna nýs menningarhúss á Sauðárkróki. Um er að ræða hönnunarsamkeppni eins og henni er lýst í 44. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Í verkinu felst hönnun um 1150 fm nýbyggingar og 1091 fm endurbóta á núverandi safnahúsi. Hönnunarteymi skal samanstanda af eftirfarandi aðilum: Hönnunarstjóra, arkitekt, landslagsarkitekt, hönnuði burðarvirkja, hönnuði lagna- og loftræstikerfa, hönnuði rafkerfa og lýsingar, hönnuði brunatækni og hönnuði hljóðvistar.
Markmiðið er að byggja aðlaðandi og vel útfært menningarhús sem sómir sér vel í umhverfinu og mætir þörfum metnaðarfulls menningarstarfs í Skagafirði. Einnig verður litið til hagkvæmnis sjónarmiða og kröfu um að framkvæmdin verði innan fjárheimilda.
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki samþykkir samhljóða að ráðast í forval vegna þátttökurétts í lokaðri hönnunarsamkeppni nýs menningarhúss á Sauðárkróki í samræmi við fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum.

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 3. fundur - 22.01.2025

Helena Margrét Áskelsdóttir frá VSÓ ráðgjöf sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Helena lagði fram yfirferð á mati á hæfi umsækjenda í forvali vegna útboðsins Menningarhús í Skagafirði - Hönnun nýbyggingar og endurbóta á eldra húsnæði í samræmi við gr. 0.3 í forvalsgögnum.

Skv. gr. 0.5.1 í forvalslýsingu hljóta þrír (3) stigahæstu umsækjendur þátttökurétt í lokaðri hönnunarsamkeppni þ.e.a.s. þrepi II. Lagt er til í ljósi mats VSÓ á forvalsumsóknum að eftirfarandi umsækjendum verði boðin þátttaka í þrepi II:
- Arkís arkitektar ehf.
- VSB verkfræðistofa ehf.
- Yrki arkitektar ehf.

Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki samþykkir samhljóða að bjóða ofangreindum aðilum þátttöku í þrepi II í hönnunarsamkeppni um menningarhús á Sauðárkróki.