Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

1007. fundur 16. mars 2022 kl. 11:30 - 13:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt að taka mál 2203139, umsagnarbeiðni, tímabundið áfengisleyfi við skíðasvæði Tindastóls, inn á dagskrá með afbrigðum.
Margeir Friðriksson vék af fundi eftir 2. dagskrárlið.

1.Móttaka flóttamanna frá Úkraínu

Málsnúmer 2203127Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar bókaði svo á 422. fundi sínum þann 9. mars 2022: "Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar ítrekar fordæmingu á innrás Rússa í Úkraínu og brot þeirra á sjálfstæði og sjálfræði úkraínsku þjóðarinnar. Sveitarfélagið Skagafjörður lýsir yfir vilja sínum til að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu og felur sveitarstjóra að vera í sambandi við flóttamannanefnd til að koma þeim vilja á framfæri, afla frekari upplýsinga um samninga um móttöku flóttamanna og stilla saman strengi með stjórnvöldum. Sveitarfélagið Skagafjörður samþykkir jafnframt að kanna mögulegt framboð húsnæðis fyrir flóttamenn í sveitarfélaginu og auglýsa m.a. eftir slíku húsnæði frá einkaaðilum og félagasamtökum."
Undir þessum dagskrárlið sat Stefán Vagn Stefánsson formaður flóttamannanefndar í gegnum fjarfundabúnað.
Farið var yfir framvindu málsins og þá vinnu sem er í gangi á vegum stjórnvalda í samvinnu við sveitarfélögin. Byggðarráð þakkar þeim aðilum sem þegar hafa boðið fram húsnæði í Skagafirði til að mæta vanda úkraínskra flóttamanna. Hægt er að skrá íbúðir í því skyni á heimasíðu Fjölmenningarseturs.

2.Samstarf um málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2203049Vakta málsnúmer

Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk frá 22. mars 2021 rann út þann 28. febrúar s.l. Sveitarstjórnir Akrahrepps, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Húnaþings vestra, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar voru samningsaðilar.
Fyrir liggur að sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu og Akrahreppur vilja halda samstarfinu áfram.
Málið rætt og því framhaldið á næsta fundi byggðarráðs.

3.Verið, vísindagarðar

Málsnúmer 2203120Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá FISK Seafood ehf., dagsett 14. febrúar 2022 varðandi uppgjör skulda Versins vísindagarða ehf. og afskráningu félagsins. Sveitarfélagið á 66,66% hlut í félaginu á móti FISK Seafood ehf.
Byggðarráð samþykkir að leggja til 50% af skuld Versins að upphæð kr. 7.359.689 og í framhaldi verður hlutafé Versins afskrifað og félagið afskráð.

4.Styrkbeiðni vegna fasteignaskatts

Málsnúmer 2203078Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts, dagsett 8. mars 2022, frá Sauðárkrókskirkju vegna Safnaðarheimilisins, Aðalgötu 1, F2131092. Sótt er um skv. reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagsamtaka skv. 2. mgr. 5.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Byggðarráð samþykkir að fella niður álagðan fasteignaskatt 2022 af fasteigninni.

5.Breytingar á reglum um Hvatapeninga - lækkun aldurviðmiða í líkamsrækt

Málsnúmer 2203024Vakta málsnúmer

Erindinu vísað frá 300. fundi félags- og tómstundanefndar þann 10. mars 2022.
Félags- og tómstundanefnd samþykkir að breyta reglum um Hvatapeninga á þann hátt að aldursviðmið vegna kaupa á kortum í líkamsræktarstöð verði lækkuð þannig að ungmenni á 16.- 18. aldursári geti keypt kort í stað ungmenna á 17. og 18 aldursári. Nefndin felur sviðsstjóra að breyta síðustu málsgrein reglnanna þannig að hún verði svohljóðandi: "Undantekning frá þessu eru ungmenni á 16. - 18. aldursári en þau geta nýtt Hvatapeninga til kaupa á æfingakortum."
Byggðarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum.

6.B. Reykjavík ehf. - Umsagnarbeiðni, tímabundið áfengisleyfi við skíðasvæði Tindastóls

Málsnúmer 2203139Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur úr máli 2203139, dagsettur 14. mars 2022 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Óskað er umsagnar um umsókn B Reykjavík ehf, um tækifærisleyfi skv. 17. gr. laga nr. 85/2007, vegna útitónleika á skíðasvæðinu í Tindastóli sem fyrirhugað er að halda þann 19.03. 2022.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

7.Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga

Málsnúmer 2203064Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. mars 2022 frá nefndasviði Alþingis. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldastofn fasteignaskatts), 78. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 21. mars nk.

8.Skýrsla; Reynsla og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi

Málsnúmer 2203096Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 9. mars 2022 frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, þar sem vakin er athygli á nýútkominni skýrslu um reynslu og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi.

Fundi slitið - kl. 13:30.