Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

938. fundur 04. nóvember 2020 kl. 11:30 - 12:22 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá

1.Starfshópur um aðgerðir til eflingar nýsköpunar í Skagafirði

Málsnúmer 2005008Vakta málsnúmer

Málið áður rætt á fundum byggðarráðs. Rætt um að koma á fót nýsköpunarklasa í Skagafirði til að styðja við og efla það fjölbreytta frumkvöðlastarf sem er í Skagafirði. Málið rætt.

2.Öryggi fjarskipta

Málsnúmer 2010186Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 27. október 2020 frá Neyðarlínunni ohf. varðandi bókun byggðarráðs frá 21. október 2020 um öryggi fjarskipta.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að svara bréfinu í samræmi við umræður á fundinum.

3.Heilbrigðiseftirlit Nl.v. fjárhagsáætlun 2021

Málsnúmer 2010268Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 29. október 2020 frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Fundargerð stjórnar HNV þann 28.10. 2020 lögð fram ásamt samþykktum embættisins og fjárhagsáætlun fyrir árið 2021. Í fjárhagsáætlun embættisins fyrir árið 2021 er ekki gert ráð fyrir hækkun á framlögum frá sveitarfélögunum til rekstursins né gjaldskrá embættisins.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við fjárhagsáætlun embættisins en byggðarráð leggur til að 4. grein samþykkta embættisins verði óbreytt að svo stöddu.

4.Ljósheimar

Málsnúmer 2011005Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 25. október 2020 frá Þ Jónssyni slf. rekstraraðila Félagsheimilisins Ljósheima. Rekstur ársins hefur verið dapur á árinu vegna Covid-19 og er óskað eftir að sveitarfélagið greiði rekstrarkostnað húsnæðisins fyrir nóvember og desembermánuð 2020. Fram kemur að Þ Jónsson slf. mun ekki endurnýja núgildandi leigusamning um húsnæðið. Samningurinn rennur út 31.12. 2020.
Byggðarráð samþykkir að styrkja reksturinn um 76.000 kr. samtals, vegna orkukostnaðar í nóvember og desember 2020.

5.Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til

Málsnúmer 2010225Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 23. október 2020 þar sem velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til, 206. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13. nóvember n.k.

Fundi slitið - kl. 12:22.