Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

876. fundur 21. ágúst 2019 kl. 14:00 - 15:12 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra frá 1. janúar 2020

Málsnúmer 1906059Vakta málsnúmer

Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra gerðu með sér samning til eins árs, með gildistöku 1. janúar 2016, þar sem Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnaþing vestra sömdu við Sveitarfélagið Skagafjörð um að vera leiðandi sveitarfélag í málefnum fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra. Nýr samningur var gerður af sömu aðilum og gilti frá og með 1. janúar 2017. Samningstími er til 31. desember 2019 og er í samningnum kveðið á um að aðildarsveitarfélögin skulu ákveða sameiginlega fyrir 1. nóvember 2019 hvort samningurinn verði endurnýjaður. Þjónusturáð verkefnisins skal skila áliti til aðildarsveitarfélaga um samstarf og jafnframt gera tillögu að samningi sem gildi frá 1. janúar 2020.
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 13. ágúst 2019 með bókun 1008. fundar byggðarráðs Húnaþings vestra frá 12. ágúst 2019 þar sem m.a. kemur fram að "Byggðarráð samþykkir, eftir skoðun sl. mánuði, að endurnýja ekki núgildandi samning og felur sveitarstjóra að hefja vinnu við næstu skref við yfirtöku málaflokksins".
Einnig er lagt fram afrit af fundargerð hreppsnefndar Akrahrepps frá 12. júní 2019 þar sem bókað er svo undir 2. dagskrárlið: "Sveitarfélagið Akrahreppur óskar eftir því að endurnýja samninginn".
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar telur allar forsendur til þess að Sveitarfélagið Skagafjörður annist þjónustu við fatlað fólk, hvort sem er í samstarfi við önnur sveitarfélög eða eitt og sér. Byggðarráð óskar eftir minnisblaði frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og félagsmálastjóra um faglega stöðu málaflokksins og enn frekari samþættingu við aðra þjónustu sviðsins.

2.Nytjar Drangeyjar á Skagafirði

Málsnúmer 1908058Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 14. ágúst 2019 frá Drangeyjarfélaginu, þar sem óskað er eftir því að félagið fái heimild til að nytja Drangey á komandi árum. Félagið mun kappkosta að viðhalda veiðiaðferðum, veiðistöðum og ganga um eyna í fullri sátt við náttúruna eins og gert hefur verið undanfarna áratugi.
Byggðarráð samþykkir að heimila Drangeyjarfélaginu að nytja Drangey til þriggja ára að því tilskyldu að félagið sendi sveitarfélaginu fundargerðir aðalfunda og ársreikninga á tímabilinu, auk þess að almennt og eðlilegt aðgengi í eyjuna verði tryggt á samningstímanum.

3.Undirbúningur hitaveituframkvæmda í Hegranesi

Málsnúmer 1908088Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að byggðarráð feli veitunefnd að kostnaðargreina og vinna að hönnun hitaveitu í þeim hluta Hegraness sem ekki er þegar tengdur við hitaveitu. Mælst er til að þessari vinnu verði hraðað sem kostur er.
Tillagan samþykkt samhljóða.

4.Enduro keppni á skíðasvæðinu í Tindastóli

Málsnúmer 1908039Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Vélhjólaklúbbi Skagafjarðar, dagsett 6. ágúst 2019, þar sem sótt er um leyfi sveitarfélagsins til að halda Íslandsmót í enduro þolakstri á skíðasvæðinu sem Skíðadeild Tindastóls hefur til umráða, þann 17. ágúst 2019. Með erindinu fylgdi staðfesting á leyfi skíðadeildarinnar fyrir mótshaldinu. Einnig lagt fram leyfisbréf sveitarstjóra dagsett 13. ágúst 2019, þar sem leyfið er veitt fyrir keppninni, svo fremi að önnur skilyrði fyrir mótinu séu uppfyllt.
Byggðarráð staðfestir leyfisveitingu sveitarstjóra.

5.Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 1908074Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. ágúst 2019 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, þar sem tilkynnt er um að ráðuneytið hafi birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033.

6.Drög að flugstefnu fyrir Ísland

Málsnúmer 1908075Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að flugstefnu fyrir Ísland (Grænbók)útgefin í júlí 2019. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði verkefnisstjórn til að vinna að mótun flugstefnu fyrir Ísland í september 2018.

7.Samningur um heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 1908063Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Embættis landlæknis um Heilsueflandi samfélag. Samningurinn var undirritaður þann 15. ágúst 2019.

8.Rekstrarupplýsingar 2019

Málsnúmer 1904245Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins fyrir tímabilið janúar - júní 2019. Í þessu óendurskoðaða yfirliti kemur fram að rekstur sveitarfélagsins, í heild sinni, er í góðu jafnvægi og í takt við fjárhagsáætlun ársins.

Fundi slitið - kl. 15:12.