Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

796. fundur 19. október 2017 kl. 09:00 - 10:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skagfirðingabraut 17-21

Málsnúmer 1704022Vakta málsnúmer

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vill skoða hvort Byggðastofnun vilji selja Sveitarfélaginu Skagafirði sinn 35% hlut í húsinu Skagfirðingabraut 17-21, fnr: 213-2118. Málið áður á dagskrá byggðarráðs 12.10.2017.
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Magnús Helgasons forstöðumaður rekstrarssviðs Byggðastofnunar komu á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að senda Byggðastofnun tilboð í eignarhluta þeirra.

2.Reglur um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur

Málsnúmer 1703008Vakta málsnúmer

Félags og tómstundanefnd samþykkti tillögu félagsmálastjóra að breyttu orðalagi 1. mgr. 11. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur, sbr. bókun nefndarinnar 18. maí 2017. 1. málsgrein 11. greininar hljóðar þá: "Foreldrar geta sótt um foreldragreiðslur ef þeim stendur hvorki til boða pláss hjá dagforeldrum né í leikskóla. Foreldragreiðslur eru greiddar eftir á, frá fyrstu mánaðamótum eftir að barn nær 9 mánaða aldri."
Einnig er samþykkt að 2. gr. reglnanna verði breytt og ákvæði um ömmuleyfi og au-pair verði fjarlægt. 2. grein hljóðar þá svo: "Dagforeldri verður að hafa leyfi samkv. reglugerð nr. 907/2005."
Byggðarráð samþykkir tillögurnar og vísar þeim til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

3.Sæmundargata 5 (C) mat á líklegu söluverði

Málsnúmer 1710071Vakta málsnúmer

Lagt fram verðmat á íbúð að Sæmundargötu 5(C)fnr: 213-2311. Íbúðin er á jarðhæð í austurhluta hússins og er 37,6 fm ásamt geymslu 4,6 fm. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera tilboð í íbúðina.

4.Suðurbraut 7, Hofsós fnr: 214-3674 - sala

Málsnúmer 1710088Vakta málsnúmer

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að selja húsið að Suðurgötu 7 á Hofsós. Húsið hýsti áður leikskólann á Hofsósi. Byggðarráð samþykkir að fela Fasteignasölu Sauðárkróks að óska eftir tilboðum í húsið.

5.Leikskólinn Ársalir - fjölgun rýma

Málsnúmer 1710098Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá eignasjóði Sveitarfélagsins Skagafjarðar varðandi skoðun á húsi sem stendur á hlaðinu við Listaháskóla Íslands og hefur verið nýtt sem kennslustofa. Húsið er auglýst til sölu og flutnings frá Sölvhólsgötu 13 eða Listaháskóla Íslands. Húsið er 79 fm og er byggt úr timbri árið 2003.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vill láta skoða hvort og með hvaða hætti væri hægt að nýta húsið við Leikskólann Ársali til að leysa úr þeim langa biðlista sem er við leikskólann. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.

6.Sameiningaviðræður Skagabyggðar og Sv. Skagafjarðar

Málsnúmer 1707164Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf til byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá Skagabyggð þar sem sveitarstjórn Skagabyggðar slítur sameiningarviðræðum við Sveitarfélagið Skagafjörð. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar þakkar Skagabyggð fyrir samtalið og óskar þeim velfarnaðar.

Fundi slitið - kl. 10:55.