Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd
Dagskrá
Sylvía Sif Halldórsdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
1.Skýrsla starfsmanna nefndarinnar
Málsnúmer 2606139Vakta málsnúmer
Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.

2.Rekstur tjaldsvæða í Skagafirði - Hofsós, Varmahlíð og Sauðárkrókur
Málsnúmer 2608093Vakta málsnúmer
Samningur við Álfaklett ehf. renna út næstkomandi áramót. Tekin hefur verið ákvörðun um að auglýsa til sölu rekstur tjaldsvæðanna á Hofsósi og í Varmahlíð. Á fundinum voru teknar umræður um tjaldsvæðið á Nöfum ofan Sauðárkróks.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri tjaldsvæðisins á Nöfunum á Sauðárkróki. Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa eftir rekstraraðila í samræmi við umræður á fundinum.

3.Samræmd móttökuáætlun skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 2609194Vakta málsnúmer
Framlögð drög að stefnu og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa 2030-2034 sem unnin var af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar SSNV kærlega fyrir þessa þörfu og mikilvægu vinnu.
Nefndin vísar drögunum til samráðs við ferðaþjónustuaðila í Skagafirði og felur starfsmanni nefndarinnar að boða til fundar þar sem drögin verða kynnt og kallað eftir sjónarmiðum og ábendingum ferðaþjónustuaðila um framtíð móttöku skemmtiferðaskipa í Skagafirði.
Að samráði loknu verða drögin yfirfarin með hliðsjón af framkomnum ábendingum og lögð aftur fyrir nefndina til umfjöllunar.
Jafnframt er erindinu vísað til landbúnaðar- og innviðanefndar til umfjöllunar.

4.Safnstefna Byggðasafns Skagfirðinga 2027-2031
Málsnúmer 2610249Vakta málsnúmer
Framlögð drög að safnastefnu Byggðasafns Skagfirðinga 2027-2031.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða framlagða safnastefnu Byggðasafns Skagfirðinga fyrir 2027-2031.

5.Tillaga að sjálfsmyndarömmum í Skagafirði
Málsnúmer 2610280Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Sigurði Bjarna Rafnssyni, dags. 27. október 2026, þar sem kynnt er tillaga að sjálfsmyndarömmum í Skagafirði.
Tillagan felur í sér að setja upp fimm frístandandi sjálfsmyndaramma sem sýna hver eina af fimm gangtegundum íslenska hestsins.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir þetta skemmtilega erindi og felur starfsmanni nefndarinnar að boða Sigurð Bjarna á næsta fund nefndarinnar.
Baldur Hrafn Björnsson yfir fundinn undir þennan lið.

6.Aðventuhátíð Skagafjarðar 2026
Málsnúmer 2611096Vakta málsnúmer
Umræður um aðventuhátíð Skagafjarðar sem fram fer dagana 28.- 29. nóvember nk.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd hvetur íbúa og gesti til þess að njóta dagsins og kíkja á þá fjölbreytta viðburði sem í boði verða yfir daginn og helgina.

7.17. júní 2027
Málsnúmer 2611137Vakta málsnúmer
Umræður um 17. júní 2027.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að skipuleggja hátíðina í Varmahlíð árið 2027.

8.Bæjarhátíð á Sauðárkróki sumarið 2027
Málsnúmer 2611158Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Ómari Braga Stefánssyni, dags. 17. nóvember 2026 þar sem óskað er eftir því að koma á fund nefndarinnar til að kynna fyrirhugaða bæjarhátíð á Sauðárkróki sumarið 2027.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin þakkar Ómari fyrir góða kynningu og mun að sjálfsögðu styðja við hátíðina ef af verður, með sambærilegum hætti og sveitarfélagið hefur gert við aðrar bæjarhátíðir í sveitarfélaginu.
Ómar Bragi Stefánsson kom á fundinn undir þennan lið.

9.Umsókn um styrk vegna leikferðar Þjóðleikhússins 2027
Málsnúmer 2611026Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Elínu Smáradóttur f.h. Þjóðleikhússins, dags. 26. október 2026, þar sem óskað er eftir sýningarrými og gistingu fyrir fyrirhugaða sýningu sem mun ferðast um landið í febrúar 2027. Sýningin er hugsuð fyrir unglingastig grunnskóla og ber heitið Laxness eins og hann leggur sig.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir framlagt erindi og felur starfsmanni nefndarinnar að vinna málið áfram í framhaldi af umræðum á fundinum.

10.Styrkbeiðni vegna jólakvöldopnunar verslunar- og þjónustuaðila á Aðalgötunni á Sauðárkróki.
Málsnúmer 2611157Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Hrafnhildi Viðarsdóttur, dags. 26. nóvember 2026 þar sem óskað er eftir styrk til að greiða fyrir söngatriði á kvöldopnun Aðalgötunnar á Sauðárkróki sem fyrirhuguð er 26. nóvember nk.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir framlagt erindi og samþykkir að veita 120.000 kr. í þetta verkefni.
Jafnframt hvetur nefndin íbúa og gesti til þess að kíkja á kvöldopnunina og kynna sér þá frábæru og fjölbreyttu þjónustu- og veitingaaðila sem þar er að finna.

11.Samráð; Drög að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu 2026-2028
Málsnúmer 2611070Vakta málsnúmer
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 152/2026, "Drög að rannsóknaráætlun Ferðamálastofu 2026-2028".
Umsagnarfrestur er til og með 17.11.2026.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tekur undir umsögn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Fundi slitið - kl. 16:00.