Fara í efni

Samræmd móttökuáætlun skemmtiferðaskipa

Málsnúmer 2609194

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 51. fundur - 23.11.2026

Framlögð drög að stefnu og aðgerðaáætlun um móttöku skemmtiferðaskipa 2030-2034 sem unnin var af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar SSNV kærlega fyrir þessa þörfu og mikilvægu vinnu.

Nefndin vísar drögunum til samráðs við ferðaþjónustuaðila í Skagafirði og felur starfsmanni nefndarinnar að boða til fundar þar sem drögin verða kynnt og kallað eftir sjónarmiðum og ábendingum ferðaþjónustuaðila um framtíð móttöku skemmtiferðaskipa í Skagafirði.

Að samráði loknu verða drögin yfirfarin með hliðsjón af framkomnum ábendingum og lögð aftur fyrir nefndina til umfjöllunar.

Jafnframt er erindinu vísað til landbúnaðar- og innviðanefndar til umfjöllunar.