Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

41. fundur 19. desember 2025 kl. 10:00 - 10:40 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Hrefna Jóhannesdóttir varaform.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir aðalm.
  • Tinna Kristín Stefánsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Maria Neves deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Maria Neves deildarstjóri þróunar, miðlunar og menningar
Dagskrá

1.Félagsheimilið Bifröst - rekstur 2026-2028

Málsnúmer 2512034Vakta málsnúmer

Tinna Kristín Stefánsdóttir vék af fundi undir þessum fundarlið.

Á 40. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar samþykkti nefndin samhljóða að fela starfsmönnum að boða alla þrjá umsækjendur sem sækjast eftir að vera rekstraraðilar félagsheimilisins Bifrastar á Sauðárkróki, í viðtal.

Fyrir fundinum lágu niðurstöður og samantektir viðtala.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að ganga til samninga við Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur og Sigfús Arnar Benediktsson til og með 31. desember 2027 með möguleika á árs framlengingu.

Nefndin þakkar fyrir góðar umsóknir og vill jafnframt koma á framfæri þökkum til Sigurbjarnar Björnssonar og Báru Jónsdóttur fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins.

Fundi slitið - kl. 10:40.