Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

47. fundur 14. júní 2017 kl. 16:00 - 18:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Viggó Jónsson varaform.
  • Hanna Þrúður Þórðardóttir ritari
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon Verkefnastjóri
Dagskrá
Viggó Jónsson tók þátt í fundinum símleiðis.

1.Samningur um gamla bæinn í Glaumbæ 2017

Málsnúmer 1706097Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga til fundarins. Rætt var um framtíðarfyrirkomulag rekstrar safnsvæðisins í Glaumbæ og gerð nýs samnings þar að lútandi en þar er lykilatriði að samkomulagi um deiliskipulag fyrir svæðið verði náð hið fyrsta.

2.Umsagnarbeiðni - drög að reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns

Málsnúmer 1705061Vakta málsnúmer

Drög að reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns dagsett 8. maí sl. voru kynnt fyrir héraðsskjalavörðum og fulltrúum sveitarfélaga á fundi hjá Þjóðskjalasafni Íslands þann 15. maí 2017. Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði var sviðsstjóra Stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt héraðsskjalaverði falið að koma með tillögu að athugasemdum fyrir hönd Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd. Tillagan var kynnt og samþykkt í nefndinni.

3.Ársskýrsla 2016 - Héraðsskjalasafn Skagfirðinga

Málsnúmer 1706098Vakta málsnúmer

Til fundarins kom Sólborg Una Pálsdóttir héraðsskjalavörður sem kynnti ársskýrslu Héraðsskjalsafns Skagfirðinga fyrir árið 2016.

4.Erindi frá Jónsmessuhátíð á Hofsósi

Málsnúmer 1706032Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf, dagsett 29. maí 2017, frá Kristjáni Jónssyni fyrir hönd Jónsmessuhátíðarnefndar á Hofsósi. Í bréfinu er óskað eftir 500.000 kr. styrk til að halda hátíðina og endurgjaldslausum afnotum af áhaldahúsi og bifreið sveitarfélagsins á Hofsósi á meðan hátíðinni stendur.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita 300.000 kr. styrk til hátíðarinnar, auk afnota af bifreið og áhaldahúsi á Hofsósi. Kostnaðurinn verður tekinn af fjárhagslið 05710.

5.Styrkbeiðni vegna námskeiðs í þjóðbúningasaumi

Málsnúmer 1706016Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá félagsskapnum Pilsaþyt þar sem óskað er eftir styrk til að standa straum af húsaleigu vegna námskeiðs í þjóðbúningasaumi sem fram fer á árinu 2017.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir að styrkja Pilsaþyt um kr. 50.000,- sem tekinn verður af lið 05890.

Fundi slitið - kl. 18:20.