Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Dagskrá
1.Birkimelur 54 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2610135Vakta málsnúmer
Svanur Þór Brandsson byggingarfræðingur sækir f.h. Margrétar Evu Ásgeirsdóttur um leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni númer 54 við Birkimel í Varmahlíð. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á teiknistofunni Hamar & Strik af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-10-11, númer A-099, A-100, A-110 og A-120, dagsettir 11.10.2026 og 28.10.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
2.Ásgarður L242035 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2610143Vakta málsnúmer
Eiríkur Vignir Pálsson byggingarfræðingur sækir f.h. Félagsbúsins Garðs ehf. um leyfi til að byggja frístundahús/gestahús á lóðinni Ásgarður, L242035 í Hegranesi. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Pro-Ark Teiknistofu af umsækjanda. Uppdrættir númer A-111 og A-400, dagsettir 14.10.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
3.Brúnastaðir L146157 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2610230Vakta málsnúmer
Guðmundur Hjaltason byggingartæknifræðingur sækir f.h. Brúnastaða ehf. um leyfi til að byggja við fjós á jörðinni Brúnastöðum, L146157. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Eflu verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir númer 01_0_01-01, 01_0_01-02 og 01_0_01-03, dagsettir 04.11.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
4.Borgarflöt 27 - Umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2611053Vakta málsnúmer
Sigfús Ingi Sigfússon sækir f.h. Háskóla Íslands á Hólum um stöðuleyfi fyrir gámi á lóðinni númer 27 við Borgarflöt á Sauðárkróki, þar sem skólinn hefur húsnæðið á leigu. Meðfylgjandi gögn dagsett 22. október gera grein fyrir umbeðnu stöðuleyfi. Fyrir liggur samþykki Kaupfélags Skagfirðinga, lóðarhafa Borgarflatar 27. Erindið samþykkt, stöðuleyfi veitt.
Fundi slitið - kl. 09:30.