Fara í efni

Borgarflöt 27 - Umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2611053

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 97. fundur - 10.11.2026

Sigfús Ingi Sigfússon sækir f.h. Háskóla Íslands á Hólum um stöðuleyfi fyrir gámi á lóðinni númer 27 við Borgarflöt á Sauðárkróki, þar sem skólinn hefur húsnæðið á leigu. Meðfylgjandi gögn dagsett 22. október gera grein fyrir umbeðnu stöðuleyfi. Fyrir liggur samþykki Kaupfélags Skagfirðinga, lóðarhafa Borgarflatar 27. Erindið samþykkt, stöðuleyfi veitt.