Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

96. fundur 27. október 2026 kl. 14:00 - 15:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Hesteyri 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2610148Vakta málsnúmer

Atli Gunnar Arnórsson byggingarverkfræðingur sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga um leyfi fyrir breytingum á innangerð iðnaðarhúss sem stendur á lóðinni númer 2 við Hesteyri á Sauðárkróki. Breytingarnar varða bílaverkstæði og verslun/móttöku. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 30340303, númer A-100 og A-101, dagsettir 11.09.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

2.Ríp II lóð 1 L224730 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2610038Vakta málsnúmer

Guðmundi Þór Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Sigurlínar E. Magnúsdóttur og Sigurðar H. Birgissonar um leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni Ríp II lóð 1, L224730 í Hegranesi. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 825, númer 01, 02, 03 og 04, dagsettir 12.01.2026.
Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2, skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

3.Ás 2 L146366 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarheimild og -leyfi

Málsnúmer 2609051Vakta málsnúmer

Kristján Elvari Gíslason og Stefanie Wermelinger eigendur jarðarinnar Ás 2, L146366 í Hegranesi leggja fram gögn er varðar tilkynnta framkvæmd, staðsetningu á stöðuhýsi sbr. C-lið gr. 2.3.6. gr. í byggingarreglugerð. Framlögð gögn gerð af Ómari Péturssyni byggingarfræðingi. Uppdráttur númer A-101, dagsettur 02.09.2026. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
Einar Andri Gíslason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

4.Dýjabekkur L146008 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2609220Vakta málsnúmer

Ingunn Helga Hafstað arkitekt sækir f.h. Arnórs Halldórssonar um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði á jörðinni Dýjabekk, L146008. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Arktika af umsækjanda. Uppdrættir í verki 231023DÝJA, númer 01.01 og 01.02, dagsettir 27.10.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:00.