Hesteyri 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2610148
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 96. fundur - 27.10.2026
Atli Gunnar Arnórsson byggingarverkfræðingur sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga um leyfi fyrir breytingum á innangerð iðnaðarhúss sem stendur á lóðinni númer 2 við Hesteyri á Sauðárkróki. Breytingarnar varða bílaverkstæði og verslun/móttöku. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 30340303, númer A-100 og A-101, dagsettir 11.09.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.