Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Dagskrá
Sigurður H. Ingvarsson sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
1.Sólheimagerði L146337 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2506201Vakta málsnúmer
Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Eyþórs Einarssonar um leyfi til að rífa mhl. 07 á jörðinni Sólheimagerði, L146337, hlöðu m/súrþurrkun, byggð 1939 sem sambyggð er öðrum útihúsum, matshlutum. 04, 05 og 09. Einnig sótt um leyfi til að byggja fjárhús, viðbyggingu við ofangreind útihús. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 75810100, númer A-100, A-101, A-102 og A-104, dagsettir 20.06.2025. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarfulltrúi samþykkir áform um niðurrif og byggingaráform.
2.Víðigrund 22 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2507196Vakta málsnúmer
Sigurður Óli Ólafsson tæknifræðingur leggur fram gögn er varðar tilkynnta framkvæmd f.h. eiganda fjöleignahúss sem stendur á lóðinni númer 22 við Víðigrund. Tilkynnt framkvæmd varðar einangrun og klæðningu norðurstafns húss utan, ásamt gluggaskiptum. Framlögð gögn gerð á hjá Stoð ehf. verkfræðistofu af Sigurði Óla Ólafssyni. Uppdrættir í verki 70111001, númer A-100 og A-101, dagsettir 18.07.2025. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
3.Víðigrund 24 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málsnúmer 2507204Vakta málsnúmer
Sigurður Óli Ólafsson tæknifræðingur leggur fram gögn er varðar tilkynnta framkvæmd f.h. eiganda fjöleignahúss sem stendur á lóðinni númer 24 við Víðigrund. Tilkynnt framkvæmd varðar einangrun og klæðningu suðurstafs húss utan, ásamt gluggaskiptum. Framlögð gögn gerð á hjá Stoð ehf. verkfræðistofu af Sigurði Óla Ólafssyni. Uppdrættir í verki 70111001, númer A-100 og A-101, dagsettir 18.07.2025. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
Fundi slitið - kl. 09:15.