Fara í efni

Vinnuskóli Skagafjarðar hefst 10. júní nk.

03.06.2025

Vinnuskóli Skagafjarðar hefur störf þriðjudaginn 10. júní.

Líkt og í fyrra verður bækistöð vinnuskólans í vallarhúsinu á íþróttavellinum á Sauðárkróki. Starfsmenn vinnuskóla í ár verða þeir Atli Steinn Stefánsson og Atli Dagur Stefánsson. Auk þeirra verða starfsmenn íþróttavallar börnunum innan handar.

Allar helstu upplýsingar um skólann má finna á upplýsingarsíðu Vinnuskólans

Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Gröndal, leiðtogi frístunda- og íþróttamála, á netfangið valdi@skagafjordur.is

Umsækjendur munu fá tölvupóst með nánari upplýsingum um hvert þau eiga að mæta á fyrsta vinnudaginn,  eigi síðar en miðvikudaginn 4. júní.