Fara í efni

Vinadagur í Skagafirði í fjórða sinn

15.10.2015
Sungið saman á sal

Mikil stemming var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í gær þegar um 700 grunnskólabörn ásamt elstu börnum leikskólanna komu saman í þeim tilgangi að skemmta sér saman og sýna hvert öðru vináttu. Dagurinn hófst með samkomu á sal þar sem sungið var og dansað og Ingó Veðurguð mætti á svæðið og sló í gegn hjá öllum aldurshópum. Nemendum var svo skipt niður eftir árgöngum og undir stjórn starfsfólks leik – og grunnskóla í Skagafirði fór hver árgangur og borðaði saman hádegisverð í matsal Árskóla ásamt því að gera eitthvað skemmtilegt s.s. fara út í leiki, spila og leika sér í vinaliðaleikjum.

10. bekkingar heimsóttu FNV, þar sem tekið var vel á móti þeim af fyrsta árs nemum skólans og skólahópar í firðinum sameinuðust íGaman saman á Vinadegi leikskólanum Ársölum.  Ekki er hægt að segja annað en að dagurinn hafi verið vel heppnaður og allir hafi lagt sitt af mörkum til þess að gera hann sem ánægjulegastan.

Þetta er í fjórða sinn sem Vinadagurinn er haldinn í Skagafirði þar sem nemendur og starfsfólk grunn- og leikskólanna hittast og nú bættist tónlistarskólinn í hóp þátttakenda og verður örugglega framhald á því. Við færum kennurum allra skólanna, Vinateyminu og sérstaklega nemendunum þakkir fyrir frábæran dag.

Hér er myndband frá deginum sem Ingvi Hrannar Ómarsson setti saman.