Fara í efni

Viltu vinna heima og annast börn?

02.11.2016

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar eftir samstarfi við aðila sem gætu hugsað sér að  taka börn í daggæslu á einkaheimili á Sauðárkróki eða næsta nágrenni.

Dagmæður/dagfeður eru sjálfstætt starfandi verktakar sem taka að sér daggæslu barna á heimili sínu. Félags- og tómstundanefnd veitir starfsleyfi að vissum skilyrðum uppfylltum og Fjölskylduþjónustan annast niðurgreiðslur vistgjalds,veitir dagforeldrum ráðgjöf og stuðning og sinnir eftirliti með starfseminni eins og kveðið er á um í reglugerð félagsmálaráðuneytisins nr. 907 frá árinu 2005. Reglugerðina er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is  undir •Þjónusta/<Fjölskyldu og félagsmál/-Dagvistun.

 

Þau sem eru áhugasöm að vita meira um málið hafi samband við Gunnar M. Sandholt, sandholt@skagafjordur.is eða Aðalbjörgu Hallmundsdóttur, allah@skagafjordur.is eða í síma 455 6000,