Fara í efni

Vilt þú ræða við Magnús sveitarstjóra?

04.11.2026

Magnús Barðdal sveitarstjóri verður með fasta viðtalstíma í Skagafirði annan hvern föstudag ýmist í Varmahlíð, á Hofsósi og á Sauðárkróki frá og með 6. nóvember nk.

Öll áhugasöm eru hvött til að nýta sér þennan möguleika og eiga gott spjall við Magnús um þjónustu og málefni sveitarfélagsins og koma á framfæri ábendingum eða ræða einstök mál.

Bóka þarf viðtal fyrir fram í gegnum rafrænt bókunarkerfi sveitarfélagsins á skagafjordur.is. Hægt er að velja stað og tímasetningu í kerfinu. Gert er ráð fyrir 30 mínútna viðtölum og við bókun er óskað eftir stuttri lýsingu á erindinu svo sveitarstjóri geti undirbúið sig eftir því sem við á.

Hægt er að bóka viðtalstíma hjá sveitarstjóra hér.