Fara í efni

Viljayfirlýsing undirrituð um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki

08.05.2018
Viljayfirlýsing um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki undirrituð

Á glæsilegri atvinnulífssýningu sem haldin var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki um liðna helgi undirrituðu Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar viljayfirlýsingu um fjármögnun og undirbúning að menningarhúsi á Sauðárkróki.

Í viljayfirlýsingunni felst að miðað er við að viðbygging og endurbætur á Safnahúsi Skagfirðinga rúmi bókasafn, skjalasafn og aðstöðu fyrir fræðastarfsemi, auk listasafns, leikhússaðstöðu og langþráð varðveislurými. Kostnaðarskipting verður með þeim hætti að hlutur ríkisins verður 60 hundraðshlutar á móti 40 hundraðshlutum, líkt og við byggingu annarra menningarhúsa á landsbyggðinni. Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun gera tillögu um að fjárheimildir vegna verkefnisins verði lagðar fram sem hluti af frumvarpi til fjárlaga ársins 2020 og að gert verði ráð fyrir því í fjármálaáætlun 2020-2024 enda sé hlutverk stjórnvalda m.a. að skapa skilyrði fyrir fjölbreytni, sköpun og frumkvæði á sviði lista og menningararfs.

Forsaga málsins er sú að árið 1999 tók ríkisstjórn Íslands ákvörðun um að veita stofnstyrki til uppbyggingar menningarhúsa utan höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að bæta þar aðstöðu til menningar- og listastarfsemi.

Á grunni þeirrar ákvörðunar undirrituðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, Gísli Gunnarsson, þáverandi forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Agnar H. Gunnarsson, oddviti Akrahrepps, samkomulag árið 2005 um uppbyggingu menningarhúss í Skagafirði.

Samkomulagið var byggt á niðurstöðum samstarfshóps skipuðum fulltrúum menntamálaráðuneytis og sveitarfélaganna í Skagafirði. Annars vegar var gerð tillaga um endurbætur á félagsheimilinu Miðgarði, þar sem áhersla yrði lögð á tónlistarflutning, stærri hátíðir og ráðstefnuhald. Var endurbætt hús, Menningarhúsið Miðgarður, formlega vígt við upphaf Sæluviku Skagfirðinga í apríl 2009. Hins vegar var gerð tillaga um að byggt yrði við núverandi Safnahús Skagfirðinga á Sauðárkróki og að þar yrði menningarmiðstöð með áherslu á fræðastörf og sýningar, sem hýsi m.a. sýningarsal, bókasafn, listasafn og skjalasafn. Vegna efnahagserfiðleika var öllum undirbúningi og framkvæmdum þessa síðari áfanga slegið á frest um nokkurra ára skeið að ósk mennta- og menningarmálaráðuneytisins en með undirritun ofangreindrar viljayfirlýsingar er undirbúningur hans hafinn á ný.