Fara í efni

Undirritun viljayfirlýsingar um að halda Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði 2016

05.05.2014

Landsmot hestamanna 2016Fulltrúar frá Landssambandi hestamannafélaga, Gullhyl, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi funduðu í Ráðhúsinu á Sauðárkróki í dag og rituðu þar undir viljayfirlýsingu um að halda glæsilegt og skemmtilegt landsmót hestamanna dagana 27. júní – 3. júlí 2016 á Vindheimamelum í Skagafirði.

Landsmót hestamanna verður haldið á Hellu dagana 30. júní - 6. júlí nú í sumar og í kjölfarið geta hestamenn farið að hlakka til skemmtilegs móts á Vindheimamelum eftir tvö ár.