Fara í efni

Viljayfirlýsing um koltrefjaframleiðslu í Skagafirði

27.05.2020
Frá undirritun í dag. F.v: Gísli Sigurðsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Sigfús Ingi Sigfússon.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði. Samræmist viljayfirlýsingin stefnu stjórnvalda um eflingu nýfjárfestingar í íslensku atvinnulífi og samkeppnishæfni Íslands á sviði nýfjárfestingar, sérstaklega á dreifbýlum svæðum líkt og á Norðurlandi vestra.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að stjórnvöld munu vinna með Sveitarfélaginu Skagafirði að innviðauppbyggingu á svæðinu með það að markmiði að fá mannaflsfreka og umhverfisvæna fjárfestingu inn á svæðið. Liður í þeirri uppbyggingu er m.a. að tryggja raforkuöryggi á svæðinu með Sauðárkrókslínu 2 en framkvæmdir við lagningu hennar hófust í vor.

Sveitarfélagið Skagafjörður í samvinnu við menntastofnanir og hagsmunaaðila á svæðinu hafa verið leiðandi á Íslandi í rannsóknum og undirbúningi að uppbyggingu koltrefjaframleiðslu á Íslandi. Er það stefna Sveitarfélagsins Skagafjaðar að vera í fararbroddi á Íslandi á sviði trefjaframleiðslu og tengdrar starfsemi.