Fara í efni

Viðmiðunardagur kjörskrár

07.05.2014

Mikilvægt er fyrir kjósendur að skráning lögheimilis sé rétt á viðmiðunardag kjörskrár, 10. maí næstkomandi, þar sem af því ræðst - eftir atvikum - í hvaða kjördeild eða sveitarfélagi viðkomandi á að kjósa.

Óheimilt er að breyta skráningu í kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir viðmiðunardag. Síðustu forvöð að tilkynna um nýtt lögheimili til Þjóðskrár eru föstudaginn 9. maí næstkomandi.

Fréttaveita Innanríkisráðuneytis: http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014/frettir-2014/nr/8670